Árshátíð Ferðaklúbbsins 4×4 laugardaginn 5. nóvember 2016

Árshátíð Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldin laugardaginn 5. nóvember 2016 verð aðeins kr. 7.000,-

 

Dagskrá hátíðarinnar:

Mæting kl. 19:00  (hugmynd að vera með koktel)

20:00 hátíðin sett af formanni Ferðaklúbbsins 4×4

Veislustjórinn 2016 er hinn eini og sanni Haraldur G. Hauksson (Halli Gulli) Eyjafjarðardeild.

Borðhald hefst fljótlega eftir setningu

Matseðill kvöldsins:

Súpa

Sætkartöflu- og graskerssúpa með brauðbollum

Forréttir

Grafinn lax, reyktur lax, heitreyktur lax, nautacarpaccio, hráskinka með klettasalati, rækjukokteill, reyktur makríll á eggi

Aðalréttir

Nautaprime, lambalæri, kalkúnabringur, ristaðar kartöflur og sætkartöflur,

steikt rótargrænmeti, kartöflugratín, brúnkál, rauðvínssósa, bernaisesósa

Meðlæti

Ristað broccolí með möndluflögum, grænt salat, grískt salat,

graflaxsósa, piparrótarsósa

———

Kaffi  og konfekt

Aðalskemmtikraftur kvöldsins verðu enginn annar en

Jónsi í svörtum fötum

Sá sem síðan heldur uppi öllu fjörinu eftir það er enginn annar en

KIDDI BIGFOOD

sem snéri geisladiskunum með sinni alkunnu snilld á síðstu árshátíð.