Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Bingóferðin 2018

11.01.2018 @ 08:00 - 17:00

Hin árlega bingóferð Ferðaklúbbsins 4×4 verður helgina 23.-25. febrúar.
Heildarfjöldi einstaklinga í ferðina er 50 manns.

Setrið er frátekið föstudag til sunnudag þannig að þátttakendur ráða hvort þeir koma á föstudagskveldi eða snemma á laugardegi.

Dagskrá
Laugardagur
– Bingó hátíðin hefst kl. 15:00, en þá fara allir útí bíla og hlusta á útdrátt í gegnum VHF stöðvarnar
– Bílabingónefndin býður upp á heitt kakó
– Grillað lambalæri og meðlæti í kvöldmat
– Stjórnin spilar fyrir söng og gleði um kvöldið
– Gleðinni lýkur kl. 23:00

Sunnudagur
– Ræs kl. 9:00 og brottför í síðasta lagi kl. 11:00

Verð og greiðsla
Fyrir gistingu og máltíð þarf að greiða 6000 kr. fyrir hvern einstakling og þarf að að leggja þá upphæð inn á reikning klúbbsins (Kennitala 701089-1549, Reikningur 0133-26-014444) fyrir 6. febrúar. Setjið í skýringu “bing”. Þeir sem greiða ekki, komast ekki í ferðina.

Skilmálar
– Ferðin er eingöngu fyrir félagsmenn Ferðaklúbbsins 4×4
– Þetta er alvöru fjallaferð fyrir breytta bíla, lágmark ca. 38“ (miðað við þyngd).
– Menn eru að ferðast á eigin vegum.
– Vísað er í ferðareglur klúbbsins. Sjá http://s3-eu-west-1.amazonaws.com/f4x4- … kendur.pdf

Linkur á skráningarformið er hér: https://goo.gl/forms/RW62hiFxpcs5FVUB2

Details

Date:
11.01.2018
Time:
08:00 - 17:00