Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

auglýsing ætti að vera hér

Ferðaklúbburinn 4x4

Vinnuferð Skálanefndar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Skálanefnd hélt sinn fyrsta fund þann 7. Júni síðastliðinn.  Þar voru nýjir meðlimir skálanefndar settir inn í stöðu mála og staða Setursins rædd.  Var ákveðið í umræðu um orkumál skálans að leita eftir tilboðum í nýja ljósavél og meta svo framhaldið eftir því sem þau detta inn.  Stefnt er að því að fara í vinnuferð í fyrstu eða annarri helgi í júlí og er talsverður verkefnalisti á döfinni.  M.a. á að reyna að mála þakið, fer reyndar eftir veðurfari, klára að mála glugga, hreinsa planið og mála steinana sem afmarka það, þrífa skálann hátt og lágt, klára að loka undir rúmstæðin uppi á svefnlofti, taka til í eldhússkápum,  lakka gólfið í gamla skálanum, klára þarf að klæða þakkantinn á klósettbyggingunni  og ýmislegt fleira mætti sálfsagt telja til. Skráningarform í ferðina verður sett upp á síðunni innan tíðar.
Kveðja, Skálanefnd 
Síðast uppfært: Mánudagur, 14. júní 2010 12:42
 

Verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð - Vikrafellsleið verður lokað

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð er opin fyrir athugasemdum til 24. júní n.k. Í henni er gert ráð fyrir lokun á Vikrafellsleið. Ef þú villt mótmæla þessu, fylgstu þá með næstu daga hér á vefnum. Það er verið að undirbúa MÓTMÆLAPÓSTKORT OG MÓTMÆLASKRÁNINGU sem mun birtast hér á vefnum seinna í vikunni. 

Attachments:
Download this file (Vikrafellsleid.jpg)Vikrafellsleid.jpg[ ][ ]726 Kb
Síðast uppfært: Föstudagur, 13. ágúst 2010 19:41 Nánar...
 

Landgræðsluferð frestað

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Vegna dræmrar þátttöku í landgræðsluferð vorsins verður ferðinni frestað.  Hreinn hjá Hekluskógum vildi gjarnan fresta samstarfinu fram á haustið. 

Með haustinu er stefnt á að bjóða uppá ferð helgaða rúlluböggum og birkifræjum. Hrenn taldi að svæðið "okkar" í Þjórsárdalnum væri vel varið og í góðu ásigkomulagi.

Hittumst með haustinu í góðri landgræðsluferð

Kveðja

Umhverfisnenfnd

.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 09. júní 2010 23:09
 

Fundagerð aðalfundar F4x4

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Ágætu félagsmenn.
 
Fundagerð aðalfundar F4x4, sem haldinn var 29. maí síðastliðinn, er komin inn á vefinn undir þráðinn „Innanfélagsmál“.  
 
Stjórn félagsins hefur skipt með sér verkum:
 
a) gjaldkeri er Guðmundur Sigurðsson,
b) ritari, og jafnframt varaformaður, er Logi Ragnarsson,
c) meðstjórnendur eru Hafliði S. Magnússon og Óskar Erlingsson.  
 
Sveinbjörn Halldórsson var endurkjörinn formaður félagsins á aðalfundinum.

Varamenn í stjórn, kjörnir á aðalfundi eru Ágúst Birgisson og Kristján Gunnarsson.


Stjórn mun hitta fulltrúa nefnda félagsins á næstunni þar sem erindisbréf einstakra nefnda verða afhent og starfið framundan tekið til umræðu.
 
Stjórn F4x4

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 09. júní 2010 10:40
 

Sumarhátíð f4x4

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Kæru félagar - sumarhátíðin 2010

Sumarhátíð f4x4 verður haldin með pompi og prakt á Þórisstöðum í Svínadal ( sjá heimasíðu Þórisstaða http://thorisstadir.is/) helgina 16. -18. Júlí dagskráin verður auglýst síðar.

Beztu kveðjur Seinagengið Léttir

 

Safetravel verkefnið

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Þriðjudaginn 8. júní var skrifað undir samstarfssamning þeirra sem koma að Safetravel verkefninu, sem Slysavarnafélagið Landsbjörg stýrir. Verkefnið er þrennskonar, útgáfa tímarits á þremur tungumálum, heimasíðan www.safetravel.is, sem opnuð var 8, júní og hálendisgæsla björgunarsveitarmanna.

Ferðaklúbburinn 4x4 er einn samsamstarfsaðila að verkefninu en myndin er tekin á undirskriftarathöfninni sem fór fram við Krísumvík í gær.  Rétt er að taka fram að F4x4 styður verkefnið ekki með fjárframlögum heldur leggur til ýmsa sérfræðiþekkingu sem gagnast verkefninu á ýmsan hátt.
 
Stjórn F4x4

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 09. júní 2010 12:05
 


Síða 3 af 18

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 18 @08:00 - 05:00eh
Landgræðsluferð
Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010
Lau okt 23 @08:00 - 05:00eh
Litlunefndarferð