Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

auglýsing ætti að vera hér

Ferðaklúbburinn 4x4

Ferð með fatlaða 12. júní - Vesturlandsdeild

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Ferðaáætlun

09:00 frá Borgarnesi, 09:30 frá Akranesi - Hafnarfjörður - Bláfjöll - Pípuvegur - Grafningur og svo endað í grilli á Þingvöllum milli 12.30 til 14.30.

Hringt verður í alla bílstjóra þegar búið er að raða endanlega niður í bíla.
Ef það eru einhverjar spurningar hafið þá samband við Helgu Björgu í s.  699-8955

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 08. júní 2010 20:30
 

Landgræðsluferð helgina 11-13 júni

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Sæl

Þá er komið að árlegri landgræðsluferð Umhverfisnefndar F4x4 í Þjórsárdalinn. Ferðin verður farin í  samvinnu við Hekluskóga og Landgræðsluna. Aðal vinnudagurinn verður 12. júní og stefnt er að góðri grillveislu þá um kvöldið.

Nánari upplýsingar um ferðina og skráningar eru á vefnum.

Kveðja,

Umhverfisnefnd.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 09. júní 2010 19:35
 

Ferðafrelsi F4x4 - okkur vantar ferðasögur og myndir

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Ferðafrelsisnefnd hefur ákveðið að stefna að útgáfu á aukablaði/blöðum með dagblaði þar sem fjallað væri um lokanir á leiðum í verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð. Við hvetjum félagsmenn í F4x4 til að lesa verndarskýrsluna (smella hér) og gera formlegar athugasemdir um lokanir, umgengisrétt, tjöldun eða annað sem betur má fara. Það þarf að skila inn athugasemdum um verndaráætlunina fyrir 24. júní og ef ykkur vantar aðstoð, vinsamlega sendið póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða hafið samband við nefndaraðila í Ferðafrelsisnefnd.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 16. júní 2010 10:33 Nánar...
 

Veiðikortið býður félögum í Ferðaklúbbnum 4x4 veglegan afslátt.

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Sjá nánari upplýsingar hér.
 

Ferð með fatlaða - Vesturlandsdeild

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Laugardaginn 12. júní er komið að árlegri ferð okkar hjá Vesturlandsdeild þar sem við bjóðum skjólstæðingum Svæðismiðlunar á rúntinn á jeppunum okkar og endum á góðum stað og grillum og höfum gaman.

Öllum er farið að hlakka mikið til og er skráning hjá þeim komin upp í 60 manns sem segir allt sem segja þarf um áhugann hjá þeim! Þetta er tilhlökkunarefni allt árið!

En við þurfum auðvitað að fá jeppa með í þessa ferð og það marga þar sem við höfum ekki verið með fleiri en tvo til þrjá farþega fyrir utan bílstjóra í hverjum bíl.

Ef þú hefur áhuga á að taka þá í þessari ferð þá endilega hafðu samband við Helgu Björgu í s. 699-8955 sem fyrst.

Með fyrirfram þökk

Stjórn Vesturlandsdeildar

 

Vestanverður Vatnajökull varasamur yfirferðar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Óvenju lítill vetrarsnjór er nú á vestanverðum Vatnajökli.

Þetta kom í ljós í vormælingaferð Landsvirkjunar og Raunvísindastofnunar Háskólans fyrir nokkru og nú um helgina festist jeppi í stórri sprungu á Sylgjujökli á leið sem oft er ekin á vorin.

Á ofanverðum Köldukvíslarjökli eru stórar opnar sprungur, sprungur í sunnanverðu Grímsfjalli og brekkur sérstaklega í norðanverðum Grímsvötnum eru illa sprungnar.

Það er því full ástæða til að vara ferðamenn við að fara hefðbundnar vorleiðir að óathuguðu máli.
Mikil leysing er nú á Tungnaárjökli neðanverðum og er hann illfær vegna krapa.
 


Síða 4 af 18

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 18 @08:00 - 05:00eh
Landgræðsluferð
Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010
Lau okt 23 @08:00 - 05:00eh
Litlunefndarferð