Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

auglýsing ætti að vera hér

Ferðaklúbburinn 4x4

Opin félagsfundur á Akureyri föstudagskv. 5. mars

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Samanber auglýsingu frá 14. febrúar síðastliðinn boðar stjórn F4x4 til opins félagsfundar á Akureyri föstudagskvöldið 5. mars kl 20:00 á Hótel KEA.
Fundurinn er haldinn í samstarfi við Eyjafjarðardeild F4x4 og eru félagsmenn þeirrar deildar sem og félagsmenn annarra deilda á norðurlandi, s.s. Húnvetningar, Skagfirðingar og Húsvíkingar,  hvattir til að mæta. Fulltrúar annarra deilda eru einnig boðnir velkomnir enda er fundurinn öllum opinn sem á annað borð eru félagsmenn í Ferðaklúbbnum 4x4.

Dagskrá fundarins verður sem hér segir.

Setning fundar ásamt kynningu.

  • Erindi frá Eyjafjarðadeild.
  • kynning á deildinni auk erindis um neðansjávarstrýtur í Eyjafirði í umsjá Erlendar Bogasonar.
  • Erindi frá Skagafjarðadeild.
  • kynning á starfi Skagafjarðadeildar auk mynda- og vídeósýningar.
  • Störf stjórnar F4x4 og umræður.
  • Kaffihlé.
  • Kynning á Stórferð F4x4 síðar í mánuðinum.
  • Störf Ferðafrelsisnefndar og hagsmunabarátta.
  • Önnur mál.

Stjórn F4x4.

 

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 04. mars 2010 15:57
 

GSM kerfið í Setrinu.

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Eins og svo margir vita þá erum við að setja upp GSM kerfi í Setrinu. Það er verið að ganga frá kerfinu og á meðan hefur verið skipt um lykla.Tilkynning um fyrirkomulag á opnun hefur verið hengd upp í anddyri Setursins. Ef nánari upplýsinga er þörf, hafið þá samband við Skálanefnd. 

Kveðja, Skálanefnd 

 

F4x4 á rás 2, miðvikudaginn 3/3 kl. 17:30

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Vegna herferðar ýmsa aðila í fjölmiðlum að undanförnu um slóðagerð þá verða fulltrúar F4x4, þeir Þorsteinn I. Víglundsson og Skúli H. Skúlason í viðtali á rás 2 í dag miðvikudaginn 3. mars kl. 17:30. Hægt er að hlusta á viðtalið hér og hvetjum við að sjálfsögðu alla til að leggja við eyrun.

Inn á síðu Ferðafrelsisnefndar má finna tengla inn á viðtöl og greinaskrif ýmsa aðila s.s. þá Andrés Arnalds og Pál Ásgeir Ásgeirssonar í tengslum við slóða og lokanir á þeim, áhugaverðir tenglar. 

Ferðafrelsisnefnd F4x4.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 03. mars 2010 19:57
 

Kvennaferð 2010

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Verkstæðisfundur

fyrir kvennaferðina

verður haldinn í kvöld þriðjudaginn 23. Febrúar kl.19:00 í húsnæði ArticTrucks að Kletthálsi 3, 110 Reykjavík.

Nánari upplýsingar um ferðina hér.  

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 03. mars 2010 19:59
 

Kæru félagsmenn í F4x4

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Mig langar að koma á framfæri þakklæti til félagsmanna fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu varðandi fráfall elskulegrar eiginkonu minnar, Halldóru Benediktsdóttur, sem lést í hörmulegu slysi á Langjökli í lok janúar s.l. Einnig langar mig að láta í ljós ánægju mína með þá vinnu sem komin er í gang við að kortleggja hættusvæði á jöklum með það að markmiði að draga úr eða helst af öllu koma í veg fyrir slys við ferðamennsku á jöklum í framtíðinni.


Kveðja,
Kristján Gunnarsson og fjölskylda.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 03. mars 2010 21:24
 

Félagsfundur Eyjafjarðardeildar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Félagsfundur Eyjafjarðardeildar verður haldinn þriðjudagskvöldið 2. mars kl: 20:00 í Húsnæði Súlna að Hjalteyrargötu 12. Ætlunin er að hafa umræðu um ferðatilhaganir í kjölfar hækkandi eldsneytisverðs, myndir verða sýndar og margt fleira verður rætt. Einnig verða kaffiveitingar í boði.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Stjórnin

Síðast uppfært: Mánudagur, 01. mars 2010 05:58
 


Síða 8 af 18

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010