Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

auglýsing ætti að vera hér

Ferðaklúbburinn 4x4

Þorrablót Hunvetningadeildar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Þorrablót Húnvetmingadeildar verður haldið i Gislaskála helgina 26-28 feb .

endilega láta vita um þáttöku i sima 8665502 

 

Síðast uppfært: Laugardagur, 20. febrúar 2010 00:01
 

Gisting á Vestfjörðum

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Vestfjarðadeild Ferðaklúbbsins 4X4 hefur gert samkomulag við staðarhaldara á Hótel Reykjanesi um aðgang að þremur herbergjum fyrir félagsmenn klúbbsins. Samkomulagið felur í sér að félagsmenn geta leigt gistingu í svefnpokaplássi fyrir átta manns og hafa aðgang að eldunaraðstöðu og setustofu auk þess sem hægt er að komast í gufubað og sund. Jafnframt er tilboð á gistingu fyrir stærri hópa. Samkomulagið gildir frá 15. febrúar til 15. mai 2010.

Síðast uppfært: Sunnudagur, 28. febrúar 2010 05:20 Nánar...
 

Opinn félagsfundur F4x4 í Eyjafirði föstudagskvöldið 5. mars.

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Ágætu félagsmenn


Stjórn F4x4 boða til opins félagsfundar á Akureyri föstudagskvöldið 5. mars næstkomandi kl 20:00 á hótel KEA.
Fundurinn er haldinn í samstarfi við Eyjafjarðardeild F4x4 og eru félagsmenn þeirrar deildar sem og félagsmenn annarra deilda á norðurlandi, s.s. Húnvetningar, Skagfirðingar og Húsvíkingar,  hvattir til að mæta. Fulltrúar annarra deilda eru einnig boðnir velkomnir enda er fundurinn öllum opinn sem á annað borð eru félagsmenn í Ferðaklúbbnum 4x4.


Dagskrá fundarins mun birtast á vefnum þegar nær dregur fundi.


Stjórn F4x4

Síðast uppfært: Sunnudagur, 14. febrúar 2010 22:49
 

Góður fundur með UST

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Fundur var haldinn 08.02.2010 hjá Umhverfisstofnun.

Fundinn sátu:
Kristín Linda Árnadóttir forstjóri UST
Hjalti J. Guðmundsson sviðstjóri náttúruauðlinda
Ólafur Arnar Jónsson sérfræðingur
Sveinbjörn Halldórsson Formaður F4X4
Ágúst Birgisson stjórnarmaður F4x4
Sæbjörg Richardsdóttir umhverfisnefnd F4x4

Umræðuefni; Póstur frá Umhverfisstofnun sem sendur var til Ferðaklúbbs 4x4 29.01.2010.

Síðast uppfært: Sunnudagur, 28. febrúar 2010 03:07 Nánar...
 

Lokanir á spjallþráðum

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Í samræmi við ákvörðun stjórnar Ferðaklúbbsins 4x4 hefur skrifaðgangi að spjallinu verið lokað fyrir aðra en félagsmenn. Eftir sem áður er áfram opið fyrir lestur á spjallinu, að Innanfélagsmálunum undanskildum. Skrifaðgangur að auglýsingaflokkum er óbreyttur, þ.e. opið fyrir alla með notandanafn að síðunni.
Þar sem að sjálfvirk samkeyrsla milli bókhaldskerfis og vefsins er í vinnslu, er hætt við að einhverjir kunna að missa þann aðgang sem þeir í raun ættu að hafa. Í því tilfelli er best að hafa samband við skrifstofuna í síma 568-4444 eða með tölvupósti á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og óska eftir að aðgangurinn verði lagaður. Vefnefnd hefur ekki nýjustu upplýsingar um hverjir hafa greitt félagsgjöldin og getur því ekki leiðrétt aðganginn án milligöngu skrifstofunnar.

Vefnefnd.
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 17. febrúar 2010 14:00
 

Ávarp fjarskiptanefndar rás 58 Hlöðufell

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Endurvarpinn á Hlöðufelli (rás 58) er að virka frábærlega vel. Á myndinni er reiknað útbreiðslukort og fyrstu prófanir sýna að endurvarpinn er að nást í samræmi við það og jafnvel betur. Hlöðufellið er að nást ágætlega í Reykjavík austanverðri og á nær öllu Suðurlandsundirlendinu (nema vestast). Líklega næst hann í Keflavík (nokkur dæmi eru staðfest á Reykjanesbrautinni) og jafnvel í Borgarnesi. Það þýðir að þeir sem búa á þessum stöðum geta náð beint að heiman í þá sem eru á ferð á t.d Langjökli og öllu svæðinu sunnan hans, sunnanverðum Kjalvegi, sunnanverðum Hofsjökli,  Tungnárjökli og jafnvel Háubungu á Vatnajökli. Þetta eykur verulega fjarskiptaöryggi og auðveldar mjög að fá fréttir af umferð og færð.


Fjarskiptanefndin hvetur alla félaga í F4x4 til að fara til næsta þjónustuaðila og fá rás 58 í stöðvar sínar til að geta notað endurvarpann á Hlöðufelli.


N1 á Ártúnshöfðanum (Bílanaust) veitir okkur 50% afslátt af þessari forritun fyrir Yaesu stöðvar og þá kostar hún aðeins 1.000 kr. Þeir minna einnig á fastan afslátt til félagsmanna á öllum talstöðvarbúnaði. Hlöðufellið næst á planinu fyrir utan N1 á Höfðanum ef stöð og loftnet eru í góðu lagi. Þannig næst gott tékk á ástandi VHF stöðvanna í leiðinni.
Síðan minnum við þá sem eru á ferðinni á að hafa VHF stöðvar sínar á skönnun.


Fjarskiptanefnd. 

 

Attachments:
Download this file (Hlöðufell_bíll.jpg)Hlöðufell_bíll.jpg[Hlöðufell útbreiðsla][ ]689 Kb
Síðast uppfært: Sunnudagur, 14. febrúar 2010 22:32
 


Síða 9 af 18

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010