
Það hafa yfir 5000 manns sent póstkort og skrifað sig á mótmælalista vegna lokana á mörgum fallegum ferðaleiðum í drögum að verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð.
Við þökkum þessum mikla fjölda aðila sem hefur skráð sig og sent mótmælapóstkort til umhverfisráðherra og Vatnajökulsþjóðgarðs.





Nú er komið að því að senda yfirvöldum alvöru skilaboð. Við mótmælum lokunum á Vonarskarði, Heinabergsdal, Vikrafellsleið og leiðum í Jökulheimum og á Tungnaáröræfum sem eru í verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð.
Verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð er opin fyrir athugasemdum til 24. júní n.k. Í henni er gert ráð fyrir lokun á leið um Heinabergsdal. Ef þú villt mótmæla þessu, fylgstu þá með næstu daga hér á vefnum. Það er verið að undirbúa MÓTMÆLAPÓSTKORT OG MÓTMÆLASKRÁNINGU sem mun birtast hér á vefnum seinna í vikunni. 
Verndaráætlun um Vatnajökulsþjóðgarð er opin fyrir athugasemdum til 24. júní n.k. Í henni er gert ráð fyrir lokun á fjölmörgum leiðum í Vonarskarði og norðan Veiðivatna og Þórisvatns. Ef þú villt mótmæla þessu, fylgstu þá með næstu daga hér á vefnum. 