Enn á ný hefur borist póstur frá vinum okkar hjá Umhverfisstofnun. Við fáum smá bland í poka, gotterí frá „stóra bróður“ – en við nánari skoðun eru bolsíurnar súrar, og kandísinn bitur. Bréfið er svar við erindi sem stjórn og félagi í Ferðaklúbbnum 4x4 sendi til Umhverfisstofnunnar vegna hins "dásamlega pósts" sem Umhverfisstofnun sendi til F4x4 föstudaginn 29.01. 2010 .
Efni: Akstur innan friðlandsins Þjórsárvera
Vísað er til erindis formanns Ferðaklúbbsins 4x4 sem barst stofnuninni 2. febrúar sl. þar sem óskað er eftir skýringum á bréfi sem stofnunin sendi til formanns og umhverfisnefndar ferðaklúbbsins þann 29. janúar sl.
Umhverfisstofnun barst ábending er varðaði skipulagða ferð á vegum Ferðaklúbbsins 4x4 í Setur 29. janúar – 1. febrúar. Ábendingin beindist að ferð á þessum tíma í Þjórsárver, nánar tiltekið að Ólafsfelli sem er innan friðlandsins. Stofnuninni var bent á að ekið yrði innan friðlandsins þar sem ekki væri ætluð umferð vélknúinna ökutækja sbr. ákvæði 4. gr. auglýsingar um friðlandið. Þar sem stofnunin hafði ekki staðfesta ferðaáætlun frá ferðklúbbnum jafnframt sem vitnað var í umræður félaga klúbbsins, vildi stofnunin með fyrrgreindu bréfi benda forsvarsmönnum ferðaklúbbsins með almennum hætti á þær reglur sem gilda um friðlandið. Umhverfisstofnun hefur áður brugðist við með sambærilegum hætti við ábendingum sem henni berast.
Samkvæmt 6. gr. laga nr. 44/1999 um náttúruvernd er hlutverk Umhverfisstofnunar m.a. umsjón, rekstur og eftirlit með náttúruverndarsvæðum sem og eftirlit með umferð og umgengni á svæðum í óbyggðum. Stofnuninni er því skylt að bregðast við ábendingum sem fram koma og koma á framfæri upplýsingum til viðeigandi aðila. Í því felst m.a. að beina tilmælum og ábendingum til ferðamanna um hvaða reglur gilda um verndarsvæði í umsjón stofnunarinnar sem og þær reglur er gilda um takmarkanir á akstri í náttúru Íslands.
Virðingarfyllst
Enn skal ítrekað að við félagar í F4x4 berum ómælda virðingu fyrir landinu okkar allra. Við förum í einu og öllu eftir náttúruverndarlögum þegar ekið er í friðlandinu sem og á leiðum utan friðlands inn til Setursins og hvar svo sem við ferðumst. - Við áréttum að Setrið er enn utan friðlands.
Í náttúruverndarlögum stendur m.a. að það sé bannað að keyra á vélknúnum ökutækjum utan vega. En leyfilegt að keyra á jöklum, snjó utan þéttbýlis þegar snjór er yfir og jörð frosin. (sjá nánar í 17. gr. náttúruverndarlaga nr.44 frá 1999 hér)
Hér fyrir neðan er hægt að lesa þann póst sem barst Umhverfisstofnun frá stjórn og félaga í Ferðaklúbbi 4x4






