Fundur var haldinn 08.02.2010 hjá Umhverfisstofnun.
Fundinn sátu:
Kristín Linda Árnadóttir forstjóri UST
Hjalti J. Guðmundsson sviðstjóri náttúruauðlinda
Ólafur Arnar Jónsson sérfræðingur
Sveinbjörn Halldórsson Formaður F4X4
Ágúst Birgisson stjórnarmaður F4x4
Sæbjörg Richardsdóttir umhverfisnefnd F4x4
Umræðuefni; Póstur frá Umhverfisstofnun sem sendur var til Ferðaklúbbs 4x4 29.01.2010.
Fundurinn hófst með því að rætt var um ábendingu sem borist hafði til UST, vegna ferðar á vegum F4x4 inn í Setur. UST taldi sig vera með réttlætanlega ábendingu um það að stefnt væri að keyra inn í friðlandið í Þjórsárverum. Skv. auglýsingu Stj.tíð. B, nr.507/1987, er ekki leyfilegt að aka þar á snjó nema á snjóbílum og vélsleðum.UST taldi sig verða að bregðast við fengnum ábendingum um að stefnt væri að keyra innan friðlandsins. Stofnunin vildi ekki ekki liggja undir því ámæli að hafa ekki gert neitt ef af akstri (tjón vegna aksturs) yrði inna friðlandsins. Þessi málaflokkur er einn af þeim sem UST hefur yfir að ráða og ber að fylgja eftir.
F4x4 gerði grein fyrir að ekki hefði verið boðað til ferðar inn í friðlandið, heldur hefði verið boðað til Þorrablóts í Setrið.
Báðir aðilar stefna að því að draga lærdóm í framtíðinni af þeim tölvupósti sem sendur var til F4x4, en gera má ráð fyrir fleiri formlegum póstum sem þessum eða sambærilegum.
Allir voru sammála um að auglýsingin Stj.tíð. B, nr.507/1987 um friðlandið í Þjórsárverum væri barn síns tíma. Ekki hafi verið mikið um akstur bifreiða á snjó þegar auglýsingin var gerð. Stefnt er að gagngerri endurskoðun á auglýsingu þegar að stækkun friðlandsins verður.
Horft verður fram á veginn í samskiptum UST og F4x4. Stefnt er að því að bæta þau og hafa samráð eins og því verður við komið. UST fékk því nýtt heimilisfang félagsins að Eirhöfða fyrir útborinn póst en póstur frá stofnuninni hefur misfarist þar sem hann hefur borist á eldra heimilisfang klúbbsins. Póstfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
látið í té sem hentugt póstfang til að senda tölvupóst á. Góð samskipti lágmarka allan misskilning.
Ítrekað var að f4x4 vildi vera í samráði vegna stækkunnar friðlandsins. Sagt var frá því að ekki væri ásættanlegt ef klúbburinn fengi ekki að ferðast innan stækkaðs friðlands. Þá voru látnar í ljósi áhyggjur af því að Setrið yrði tekið eignarnámi.
Umhverfisstofnun mun vera í samráði við F4x4 um stækkunina í Þjórsárverum eins og hægt er. Mikill skilningur er fyrir sérstöðu klúbbsins á svæðinu. Ekki er stefnt á að taka Setrið eignarnámi og hafi ekki staðið til.
Þá verður sameiginleg yfirlýsing samin til alls vetrarferðafólks. Þar sem minnt er á snjóleysi á hálendi og þær hömlur sem slíkt árferði skapar á vetrarferðalöguk
Fundi slitið. SR/SR






