Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Ávarp fjarskiptanefndar rás 58 Hlöðufell

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Endurvarpinn á Hlöðufelli (rás 58) er að virka frábærlega vel. Á myndinni er reiknað útbreiðslukort og fyrstu prófanir sýna að endurvarpinn er að nást í samræmi við það og jafnvel betur. Hlöðufellið er að nást ágætlega í Reykjavík austanverðri og á nær öllu Suðurlandsundirlendinu (nema vestast). Líklega næst hann í Keflavík (nokkur dæmi eru staðfest á Reykjanesbrautinni) og jafnvel í Borgarnesi. Það þýðir að þeir sem búa á þessum stöðum geta náð beint að heiman í þá sem eru á ferð á t.d Langjökli og öllu svæðinu sunnan hans, sunnanverðum Kjalvegi, sunnanverðum Hofsjökli,  Tungnárjökli og jafnvel Háubungu á Vatnajökli. Þetta eykur verulega fjarskiptaöryggi og auðveldar mjög að fá fréttir af umferð og færð.


Fjarskiptanefndin hvetur alla félaga í F4x4 til að fara til næsta þjónustuaðila og fá rás 58 í stöðvar sínar til að geta notað endurvarpann á Hlöðufelli.


N1 á Ártúnshöfðanum (Bílanaust) veitir okkur 50% afslátt af þessari forritun fyrir Yaesu stöðvar og þá kostar hún aðeins 1.000 kr. Þeir minna einnig á fastan afslátt til félagsmanna á öllum talstöðvarbúnaði. Hlöðufellið næst á planinu fyrir utan N1 á Höfðanum ef stöð og loftnet eru í góðu lagi. Þannig næst gott tékk á ástandi VHF stöðvanna í leiðinni.
Síðan minnum við þá sem eru á ferðinni á að hafa VHF stöðvar sínar á skönnun.


Fjarskiptanefnd. 

 

Attachments:
Download this file (Hlöðufell_bíll.jpg)Hlöðufell_bíll.jpg[Hlöðufell útbreiðsla][ ]689 Kb
Síðast uppfært: Sunnudagur, 14. febrúar 2010 22:32  

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 18 @08:00 - 05:00eh
Landgræðsluferð
Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010
Lau okt 23 @08:00 - 05:00eh
Litlunefndarferð