Vestfjarðadeild Ferðaklúbbsins 4X4 hefur gert samkomulag við staðarhaldara á Hótel Reykjanesi um aðgang að þremur herbergjum fyrir félagsmenn klúbbsins. Samkomulagið felur í sér að félagsmenn geta leigt gistingu í svefnpokaplássi fyrir átta manns og hafa aðgang að eldunaraðstöðu og setustofu auk þess sem hægt er að komast í gufubað og sund. Jafnframt er tilboð á gistingu fyrir stærri hópa. Samkomulagið gildir frá 15. febrúar til 15. mai 2010.
Verð á gistingu fyrir félagsmenn F4X4 er 1000 krónur. Frítt fyrir 16 ára og yngri. Utanfélagsmenn greiða 2000 krónur. Vilji menn gista á gólfi er hægt að leigja dýnur hjá HR á 500 krónur. Þurfi félagsmenn í stærri hópum gistirými fyrir fleiri er tilboð hjá HR á gistingu fyrir félagsmenn F4X4 á gistingu á hótelinu og kostar svefnpokapláss í rúmi 2000 krónur.
Bókanir skulu fara fram í gegnum Barða Önundarson, formann deildarinnar, í síma 892-0429, eða Ólaf Hallgrímsson, stjórnarmann, í síma 898-8646, og verða herbergin afhent gegn staðfestingu á greiðslu og framvísun á gildu félagsskírteini hjá staðarhaldara. Greiða skal fyrir gistinguna á reikning deildarinnar í banka 1128-26-5611 en kennitala deildarinnar er 561198-2419.
Félagsmenn skulu í hvívetna fylgja umgengnisreglum Hótels Reykjaness og virða opnunartíma sundlaugarinnar en sundlaugin er opin frá 8 til 23:30.
Nánari upplýsingar um hótelið og þjónustu þess má nálgast á heimasíðu Hótel Reykjaness www.rnes.is.






