
Eins og fram kom á félagsfundinum í Mörkinni í gærkvöldi (11. jan.), þá er fyrirhuguð ferð í mars n.k. Meiningin er að fara nokkuð krefjandi leið eða svipaða leið og farin var í Aldamótaferð klúbbsins í lok mars 2000, en þá lá fyrirhuguð leið frá Reykjavik til Egilsstaða um Nýjadal, Gæsavötn, Kverkfjöll og Snæfell.
Eftirfarandi kom fram á fundinum varðandi skipulag ferðarinnar: Sjá "Nánar" hér fyrir neðan
Í Hjólför Aldamótanna
Krapi/Klaki 2010
· Brottför 18. mars
· Gistingar og ferðaplan
18. mars – Nýjidalur
19. mars – Sigurðarskáli
20. mars - Hótel Hérað
Ferðalok og grillveisla
21. mars – Hver og einn heldur til síns heima eins og hverjum hentar best.
· Miðað er við tvo í hverjum bíl og skal a.m.k. annar vera félagsmaður í klúbbnum með greitt árgjald 2010.
· Lágmarks dekkjastærð 38”.
· Þátttakendur skrá sig inn sem hópar og skulu a.m.k. 4 bílar vera í hverjum hóp.
· Hver hópur skal vera sjálfbjarga um að leysa úr öllum hefðbundnum vandamálum sem upp kunna að koma.
· Hver bíll skal vera búinn VHF talstöð, síma og GPS, auk annars búnaðar sem sjálfsagður má teljast í vetrarferðum á hálendinu.
· Í hverjum hóp skal vera a.m.k. eitt spil.
· Ætlast er til að farþegar í bílum séu komnir á fermingaraldur.
Skráning:· Skráning hefst mánudaginn 25. janúar og verður fyrirkomulag hennar auglýst nánar á vef klúbbsins.
· Skráning gildir fyrir hvern hóp í heild en skráningu þurfa að fylgja upplýsingar um alla meðlimi hópsins.
· Hámarks fjöldi þátttakenda miðast við gistirými og er 80 manns eða 40 bílar.
Fyrirspurnir sendist á Undirbúningsnefnd, netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.






