Þetta er fjölmennasta ferð Litlunefndar frá upphafi. Svo mikil ásókn var í skráningar að það þurfti að loka fyrir skráningar fyrr en áætlað var, vegna þess að ekki voru nægilega margir farar- og hópstjórar skráðir til að ferðin gæti verið örugg.
Að morgni laugardagsins 16. janúar lögðu af stað 55 bílar frá Select við Vesturlandsveg og hélt hópurinn að Húsafelli þar sem stoppað var, tekið eldsneyti og hópar þéttir. Allir héldu síðan að Jaka og upp að jökulröndinni þar sem hleypt var úr og menn reyndu sig í snjónum. Eftir smávægilega byrjunarörðugleika var haldið upp jökulinn í 7 hópum, hver hópur með hópstjóra og eftirfara. Flestum gekk vel að halda hópinn, enda mjög blint og skyggni nánast ekkert. Kristján aðalfararstjóri hélt á toppinn gaf upp hnitin þar sem hann var og stefndu allir hópar þangað. Góð æfing í að fylgja trakki og nýta gps tækið til að komast á ákveðinn stað. Flestir hóparnir komust á toppinn og nutu þess að hafa komist þangað, því útsýnið var ekkert nema í hugum þeirra sem þarna hafa komið áður.Eftir þetta var brunað niður að Jaka og pumpað í dekk. Sumir léku sér í jökulröndinni á brettum og í spóli, en síðan héldu menn heim á leið, minni bílarnir á malbikinu, þeir stærri á Kaldadal. Nokkur myndasöfn úr ferðinni:
Myndasafn 1 - Pétur Friðrik Þórðarson
Myndasafn 2 - Hans Þór
Myndasafn 3 - Kristinn Helgi Sveinsson
Myndasafn 4 - Ólafur Magnússon
Myndasafn 5 - Þór Ingi Árdal






