Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Skráning í stórferðina 18. – 21. mars 2010

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Mynd úr Aldamótaferðinni 2000, tekin af David MorrisonNú nálgast að opnað verði fyrir skráningu í stórferð ársins, Í hjólför aldamótanna.  Þátttökugjald í ferðina er stillt í hóf eins og frekast er hægt eða 9.000 kr. á mann.  Innifalið í því er gisting í Nýjadal, gisting í Sigurðarskála og matur og gisting á Hótel Héraði. Opnað verður fyrir skráningu mánudaginn 25. janúar kl. 20.00 og fer skráning fram hér á vefnum. 

Með því að velja flipa merktan “Klúbburinn” hér í valmyndinni fyrir ofan og smella þar á “Skráning í ferðir” opnast skráningasvæðið. Til að bæta við skráningu er smellt á græna hnappinn (eða bláa titilinn) þá opnast skráningarformið.  Athugið að skráningarformið verður ekki virkt fyrr kl. 20 mánudaginn 25. janúar.  

Við skráningu þarf að hafa í huga að skráning byggir á hópum og hver hópur ferðast sjálfstætt og þarf að vera sjálfbjarga.  Því er nauðsynlegt að mynda fyrst hópinn og best er að skrá hann í einu lagi, þ.e. hvern þátttakanda á eftir öðrum.  Búist er við góðri þátttöku en fjöldi þátttakenda takmarkast af plássi í skálum.

 Fyrirkomulag greiðslu þátttökugjalda verður auglýst nánar á vef klúbbsins.

 

Spurt er um eftirfarandi á skráningarforminu:

Feitletruð atriði eru skilyrt 

Hópur: 
Nafn:               fyllist út sjálfkrafa ef viðkomandi er innskráður á vefinn
Netfang:          fyllist út sjálfkrafa ef viðkomandi er innskráður á vefinn
Bókuð pláss:
Félagsnúmer:
GSM:
NMT:
Nafn farþega:
Tegund og gerð bíls:
Árgerð:
Litur:
Skráningarnúmer:
Dekkjastærð:
Þyngd:
Læsing framan:
Læsing aftan:
Spil:
GPS:
VHF:
Viðbótarupplýsingar:

Eldri frétt um sömu ferð

________________________________  

Undirbúningsnefndin

 

 

Síðast uppfært: Sunnudagur, 24. janúar 2010 11:55  

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010