Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Umhverfisnefnd

Stikuferð umhverfisnefndar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Stikuferð Umhverisnefndar hefst laugardaginn 4 september

Farið verður frá Select á Ártúnshöfða kl 08.00 .

Haldið verður þaðan í Dómadal um Landveg og stikað úr Dómdalnum annarsvegar í  Hrafntinnusker og hinsvegar leiðina í átt að Laufafelli.

Að lokinni stikun verður haldið í Dalakofan, skála Útivistar í boði Útivistar og Grillað í boði F4x4. Gist verður 1 nótt í Dalakofanum, en um 20 gistipáss eru í skálanum.Á sunnudegi verður valin skemtileg útsýnisleið á leið til byggða.


Skráning er í spjallþræði hér á vefnum, hjá Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og hjá Diddu s-6948862
Taka skal fram hve margir eru í bíl, símanúmer, hvort verður gist en takmarkað gistipláss er í skálanum.

Kveðja Umhverfisnefnd

Síðast uppfært: Mánudagur, 30. ágúst 2010 16:05
 

Landgræðsluferð frestað

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Vegna dræmrar þátttöku í landgræðsluferð vorsins verður ferðinni frestað.  Hreinn hjá Hekluskógum vildi gjarnan fresta samstarfinu fram á haustið. 

Með haustinu er stefnt á að bjóða uppá ferð helgaða rúlluböggum og birkifræjum. Hrenn taldi að svæðið "okkar" í Þjórsárdalnum væri vel varið og í góðu ásigkomulagi.

Hittumst með haustinu í góðri landgræðsluferð

Kveðja

Umhverfisnenfnd

.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 09. júní 2010 23:09
 

Skráning er hafinn í árlega Landgræðsluferð f4x4

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Landgræðsluferð 2009

Helgarferð 11 - 13 júní 

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu í hina árlegu landgræðsluferð F4x4.  Í ár, eins og undanfarin ár verður farið Þjórsárdalinn. 

Margir stefna á að leggja af stað á föstudagssíðdegi og ná þannig góðri útileguhelgi. Gisting verður í boði Hekluskóga á tjaldstæðinu við Sandártungu skammt austan Sandár. Tjaldsvæðið er velgróið, fallegt og flatirnar aðskildar með trjágróðri.


Laugardagurinn 12.06. verður aðalvinnudagurinn. Við höfum, í samstarfi við Landgræðsluna og Hekluskóga, séð um að dreifa áburði blönduðu melgresi og grasfræjum á ákveðin svæði í Núpsskógi og Þórðarholti.  Þau svæði eru frekar stutt frá tjaldstæðinu.

Á laugardagskvöldinu verður frábært grill í boði klúbbsins og eru þeir sem stefna eingögnu á vinnuferðina sjálfa, en ætla sér ekki að gista, bent á að skrá sig þannig að nægur matur verði í boði fyrir alla.

Nánari upplýsingar um ferðina og skráningar eru á vefnum. Einnig er hægt að senda okkur póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   eða hringja í Diddu í síma 694 8862.

Landgræðslukveðjur frá Umhverfisnefnd

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 09. júní 2010 22:08
 

Landgræðsluferð helgina 11-13 júni

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Sæl

Þá er komið að árlegri landgræðsluferð Umhverfisnefndar F4x4 í Þjórsárdalinn. Ferðin verður farin í  samvinnu við Hekluskóga og Landgræðsluna. Aðal vinnudagurinn verður 12. júní og stefnt er að góðri grillveislu þá um kvöldið.

Nánari upplýsingar um ferðina og skráningar eru á vefnum.

Kveðja,

Umhverfisnefnd.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 09. júní 2010 19:35
 

Lokanir hálendisvega

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Umhverfisnefnd f4x4 vil minna ferðalanga á að Vegagerðin hefur lokað flestum hálendisvegum  vegna aurbleytu.   Sjá nánar á korti Vegagerðarinnar.

Virðum lokanir  – vinnum með náttúrunni.

Umhverfisnefnd f4x4 

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 15. apríl 2010 00:38
 


Síða 1 af 3

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 18 @08:00 - 05:00eh
Landgræðsluferð
Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010
Lau okt 23 @08:00 - 05:00eh
Litlunefndarferð