Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Hjálparsveit

Hjálparsveit

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Hjálparsveit

Hægt er að hafa samband við hjálparsveit gegnum vefpóstfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða gegnum útkallssíma sem listaðir eru hér að neðan.

Hlutverk og störf hjálparsveitar 4x4.

Hlutverk hjálparsveitar 4x4 hefur verið að breytast með árunum. Áður fyrr var megin hlutverk hennar að aðstoða menn við að koma biluðum jeppum félagsmanna niður af hálendinu og er það enn.

Í dag er hlutverk hennar frekar að standa að forvörnum og upplýsingagjöf. Sem og að aðstoða aðrar nefndir í störfum sínum.

Undanfarið hefur Hjálparsveitin verið ötul í að taka þátt í ferðum með Litlunefnd klúbbsins, ýmist sem aðstoðar bílar eða að taka að sér hópstjórn. 

Árið 2007 sá sveitin td. um að halda fjölskylduhátíð í Setrinu, fundað var með hagsmunaaðilum td. Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu (umferðarfulltrúar á hálendinu), hún sá um tvö fimmtudagskvöld þar sem kynning var á skyndihjálp. Tveir einblöðungar í jeppan um skyndihjálp og ofkælingu voru unnir.

Hjálparsveit 4x4 hefur unnið að gerð bæklinga varðandi ofkælingu á hálendinu. Ljóst er að björgunarsveitir í landinu munu í auknu mæli nota sér bætt fjarskipti til þess að virkja m.a. okkar félaga á fjöllum ef slys ber að höndum, aðalatriðið er að aðstoð berist sem fyrst og því er mikilvægt að þekking og reynsla sé fyrir hendi hjá klúbbfélögum. Þessa bæklinga má nú nálgast hér neðst á síðunni. 

Félagar 4x4 eru beðnir um að prenta út bæklingana á litaprentara, báðu megin, láta plasta hann, lesa hann og setja í hanskahólfið á jeppanum. Ef komið er að slysi er gott að hafa svona bækling til taks til að tryggja rétt handbrögð. Einnig er hægt að hafa samband við meðlimi hjálparsveitarinnar ef ekki er til taks litaprentari eða meðlimir komast ekki í plöstunarvélar.

Gátlisti yfir búnað er ágætt er að hafa meðferðis í jeppaferðir er einnig fáanlegur hér að neðan. Athugið að listinn er ekki tæmandi, né eru allir þeir hlutir sem á honum eru nauðsynlegir, en ættu að gefa einhverja hugmynd um hvað sé gott að hafa meðferðis. Skiptir þá engu hvort um dagsferð eða helgarferð sé að ræða. Enda á vanur fjallamaður ávalt að gera ráð fyrir að dagsferð geti breyst í 2ja daga ferð sökum veður eða færðar. 

Fjarskipti eru mjög mikilvæg hverjum ferðalanga og í raun ætti enginn að hætta sér á fjöll án þess að hafa amk einhver fjarskipti. Hér á síðu Sigga Harðar má sjá kort yfir endurvarpa á vegum Ferðaklúbbsins 4x4 sem og björgunarsveita. Ágætt er að íhuga staðsetninga endurvarpa svo bestu möguleika á fjarskiptum megi nota á hverjum stað. Mikilvægt getur verið að geta nýtt sér tiltekna endurvarpa komi til neyðar eða þurfi einfaldlega að láta vita af ferðum sínum. Ágætt er að prenta þetta kort út og hafa í jeppanum.

Nýliðar eru hvattir til að hafa hiklaust samband við hjálparsveitarmeðlimi í gegnum síma eða netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. hafi þeir einhverjar spurninga. Við erum færir um að aðstoða við flest allt. 

Skipunarblað Hjálparsveitar

Stjórn

Samúel Þór Guðjónsson, Meðstjórnandi. Útkallssími: 848-2317, opinn allan sólarhringinn. 

Stefán Baldvinsson. Útkallssími: 893-0754

Alfreð Morthensen

Pétur Friðrik Þórðarsson

Baldur Harðarsson

Nánari upplýsingar um meðlimi má sjá á lista yfir meðlimi nefnda hér .

 

Attachments:
Download this file (Gatlisti.pdf)Gatlisti.pdf[Leiðbeinandi gátlisti][ ]81 Kb
Download this file (geturthuhjalpad.pdf)geturthuhjalpad.pdf[Plagg um skyndihjálp. Nauðsyn í hverjum bíl.][ ]228 Kb
Download this file (ofkaeling.pdf)ofkaeling.pdf[Plagg um ofkælingu. Nauðsyn í hverjum bíl.][ ]229 Kb
Síðast uppfært: Mánudagur, 01. mars 2010 01:52
 


Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 18 @08:00 - 05:00eh
Landgræðsluferð
Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010
Lau okt 23 @08:00 - 05:00eh
Litlunefndarferð