Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Skálanefnd

Skálanefnd 2010-2011

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Netfang Skálanefndar er Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og nefndina skipa:  

 Logi Már Einarsson           Formaður                     Skálagjöld fyrir     1500 kr. fyrir félaga í 4x4
 Jón Emil Þorsteinsson     Ritari                                    Setrið er:          3000 kr. fyrir utanfélagsmenn
 Ómar Wieth                          Gjaldkeri                                                         1500 kr. fyrir 13 - 16 ára aldur
 Rúnar Sigurjónsson                                                                                    Frí gisting upp að 13 ára aldri
 Þórður Helgason
                                                                         Hægt er að leggja skálagjöld inná reikning skálanefndar:
                                                                                           Reikningur:  1175-26-024444
                                                                                           Kennitala:     701089-1549

Síðast uppfært: Mánudagur, 30. ágúst 2010 23:49
 

Setrið, afrek helgarinnar.

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Skálanefnd stóð fyrir vinnuferð í Setrið um liðna helgi.  Því miður kvarnaðist nokkuð úr hópnum sem búist var við að tæki þátt en þar sem þeir sem eftir stóðu voru harðsnúinn hópur manna þá gengu hlutirnir þrátt fyrir það vel fyrir sig og margt vannst í þessari ferð.  Ómar skálanefndarmaður og Biggi málari fóru uppeftir á fimmtudagseftirmiðdegi og hófust handa við undirbúning málningar á þaki og sóttist þeim verkið vel, náðu þeir að skrapa og grunna allnokkuð og fullmála einn þakhlutann á föstudeginum áður en veðurfarið setti varanlegt strik í reikninginn þessa helgina og varð ekki meira að gert í þeim efnum. Var því farið í það að einbeita sér að innri málum skálans og voru gluggar í eldri hluta byggingarinnar slípaðir og olíubornir.  Allar gardínur voru teknar niður og eru í þessum skrifuðum orðum í þvottavélinni hjá undirrituðum og verða hengdar upp við fyrsta tækifæri.  Gólfin í eldri hluta skálans voru síðan slípuð og lökkuð og eru sem ný og ætti að vera auðveldara og skemmtilegra að halda þeim hreinum eftir þessa aðgerð. Stóraðgerð var gerð í eldhússkápum, hreinsað var út úr þeim öllum og þrifið, grisjað var í búnaði og reynt að meta hvað mátti missa sín.  Gert var við hlera fyrir útihurðum og klárað að loka undir rúmstæði á svefnlofti.  Farið var í stóraðgerð á gámnum, öllu hent út úr honum og til að gera langa sögu stutta þá er langur vegur frá því að allt sem fór út úr honum hafi farið inn í hann aftur. (Hljómsveitin Hættir gæti sennilega haldið ball í honum núna.)  Grillað var á laugardagkvöldinu og fóru menn að týnast heim seinnipartinn á sunnudeginum utan undirritaðs og sonar hans sem urðu eftir til að klára gólfin og komust ekki í bæinn fyrr en undir morgun á mánudeginum. Skálanefnd vill þakka þeim sem lögðu hönd á plóg þessa helgina fyrir félagsskapinn og vinnuframlagið og vonast til að njóta krafta þeirra síðar í sumar þegar kallað verður til frekari vinnuferða. 

Logi Már.  Formaður Skálanefndar.

http://www.f4x4.is/g2/main.php?g2_view=core.DownloadItem&g2_itemId=283687&g2_serialNumber=2

Attachments:
Download this file (sk 004.JPG)sk 004.JPG[ ][ ]2635 Kb
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 19:38
 

Vinnuferð Skálanefndar

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Skálanefnd hélt sinn fyrsta fund þann 7. Júni síðastliðinn.  Þar voru nýjir meðlimir skálanefndar settir inn í stöðu mála og staða Setursins rædd.  Var ákveðið í umræðu um orkumál skálans að leita eftir tilboðum í nýja ljósavél og meta svo framhaldið eftir því sem þau detta inn.  Stefnt er að því að fara í vinnuferð í fyrstu eða annarri helgi í júlí og er talsverður verkefnalisti á döfinni.  M.a. á að reyna að mála þakið, fer reyndar eftir veðurfari, klára að mála glugga, hreinsa planið og mála steinana sem afmarka það, þrífa skálann hátt og lágt, klára að loka undir rúmstæðin uppi á svefnlofti, taka til í eldhússkápum,  lakka gólfið í gamla skálanum, klára þarf að klæða þakkantinn á klósettbyggingunni  og ýmislegt fleira mætti sálfsagt telja til. Skráningarform í ferðina verður sett upp á síðunni innan tíðar.
Kveðja, Skálanefnd 
Síðast uppfært: Mánudagur, 14. júní 2010 12:42
 

Skálavarsla í Setrinu sumarið 2010

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Við ætlum að reyna að hafa skálavörslu í Setrinu eins og síðasta sumar. Tímabilið verður frá því að hálendið opnar 
eða frá ca. mánaðarmótunum júní-júlí þar til í enda ágúst og er um sjálboðavinnu að ræða. Áhugasamir sendi póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og taki fram hvaða tímabil viðkomandi vill vera.
Skálanefnd
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 06. maí 2010 13:04
 

VINNUFERÐ SKÁLANEFNDAR 9-11 JÚLÍ

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Farin verður vinnuferð skálanefndar 9-11 júlí. Óskum við eftir vinnufúsum höndum til að vinna þau margvíslegu verkefni sem fyrirhuguð eru. Sameiginlegur matur verður á laugardagskvöldið. Við reiknum með að leggja af stað seinnipart föstudags og koma heim á sunnudagskvöld. Þeir sem geta lagt fram hendur í þessa ferð skrái sig á spjallþræði. Einnig má hringja í síma skálanefndar, 844-5010 til að fá nánari upplýsingar.  

Skálanefnd.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 12. ágúst 2010 08:44
 


Síða 1 af 3

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 18 @08:00 - 05:00eh
Landgræðsluferð
Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010
Lau okt 23 @08:00 - 05:00eh
Litlunefndarferð