Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Vefnefnd

Lokanir á spjallþráðum

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Í samræmi við ákvörðun stjórnar Ferðaklúbbsins 4x4 hefur skrifaðgangi að spjallinu verið lokað fyrir aðra en félagsmenn. Eftir sem áður er áfram opið fyrir lestur á spjallinu, að Innanfélagsmálunum undanskildum. Skrifaðgangur að auglýsingaflokkum er óbreyttur, þ.e. opið fyrir alla með notandanafn að síðunni.
Þar sem að sjálfvirk samkeyrsla milli bókhaldskerfis og vefsins er í vinnslu, er hætt við að einhverjir kunna að missa þann aðgang sem þeir í raun ættu að hafa. Í því tilfelli er best að hafa samband við skrifstofuna í síma 568-4444 eða með tölvupósti á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og óska eftir að aðgangurinn verði lagaður. Vefnefnd hefur ekki nýjustu upplýsingar um hverjir hafa greitt félagsgjöldin og getur því ekki leiðrétt aðganginn án milligöngu skrifstofunnar.

Vefnefnd.
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 17. febrúar 2010 14:00
 

Fletting í spjalli / smáauglýsingum

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

 

Bætti við í aðalvalmynd undir Spjallið tengla á síður þar sem hægt er að fletta gegnum spjallþræði eða auglýsingar óháð undirflokki.

Bætti einnig við "meira" hlekkjum í listana hægra megin á forsíðu.

 -haffi

 

Síðast uppfært: Föstudagur, 15. janúar 2010 09:57
 

Textaleit á vefnum

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Þessi síða lýsir í stuttu máli hvernig hægt er að leita að texta á vef f4x4.is.

Vefurinn er samsettur af ólíkum kerfiseiningum (modules). Leitin hefur ekki enn verið samhæfð á milli kerfanna. Leitin er þessvegna bundin kerfiseiningum.

1. Leit innan spjallþráða og auglýsinga : Nota leitina sem er inni á spjallþráðasíðunni.

2. Leit innan mynaalbúms : Nota leitina sem er neðst á myndaalbúmsíðunni ("Advanced search")

3. Leit innan viðburðadagatals : Smella á dag í dagatali og velja leitina ofarlega á viðburðadagatalssíðunni. 

4. Önnur leit, leit innan forsíðu vefs og vefsíða, sem eru aðgengilegar frá stiku vefins : Nota leitina efst uppi á skjánum, hægra megin, við hlið myndarinnar.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 25. ágúst 2009 10:27
 

Ýmsar leiðbeiningar varðandi vefinn

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

 

Leiðbeiningar um vefinn - Spurningar og svör.

Spurningar sendist á vefnefnd :  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  

Hvernig....:

Meira síðar...
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 02. september 2009 23:12
 

Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4x4

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
  1. Skilmálar þessir gilda fyrir alla notkun á vefsvæði Ferðaklúbbsins 4x4, f4x4.is.
  2. Skilmálarnir geta breyst án fyrirvara ef þörf þykir.
  3. Notkun vefsvæðisins skal vera í samræmi við hlutverk klúbbsins eins og það er skilgreint í lögum hans.
  4. Brot á skilmálum þessum getur valdið tafarlausri brottvikningu af vefsvæði klúbbsins og síendurtekin brot geta varðað brottvísun úr klúbbnum.
  5. Notendur skulu gefa upp rétt nafn og kennitölu við nýskráningu. Skráningum sem ekki uppfylla þetta skilyrði verður tafarlaust eytt.
  6. Óheimilt er að nota aðgang annarra. Þar með talið er óheimilt að lána öðrum aðgangsorð sitt, nota kennitölu eða félagsnúmer annarra, reyna að komast yfir aðgangs- og lykilorð annarra eða nota á annan hátt gögn sem tilheyra öðrum.
  7. Óheimilt er að nota aðganginn til að að brjótast eða reyna að brjótast inn í tölvukerfi eða tölvunet annarra eða til að valda tjóni á búnaði eða gögnum. Ferðaklúbburinn 4x4 ber ekki ábyrgð á því tjóni sem slíkt kann að valda.
  8. Haga skal notkun í samræmi við góða siði og umgengnisreglur. Ærumeiðingar, tilhæfulausar ásakanir og árásir á aðra notendur eru ekki liðnar. Þursar, sem hafa það eina markmið að koma af stað rifrildum, eru ekki umbornir og mun slíkum þursum verða meinaður aðgangur að síðunni í skemmri eða lengri tíma. Vefnefnd metur það hverju sinni hvort viðkomandi notandi sé að þursast eður ei og getur lokað aðgangi hans tímabundið. Stjórn Ferðaklúbbsins 4x4 í samráði við Vefnefnd ákveður hvort lokun skuli vera varanleg.
  9. Notendum skal vera ljóst að þeir bera sjálfir persónulega ábyrgð á öllu sem þeir skrifa eða senda á vefinn. Þeir skulu því haga notkun sinni á vefnum með þeim hætti að ekki sé brotið á friðhelgi persónu né einkalífi annarra. Vefnefnd mun fjarlægja slík skrif án nokkurs fyrirvara.
  10. Óheimilt er að nota upplýsingar af vefsvæðinu til að senda óumbeðnar fjöldasendingar.
  11. Auglýsingar frá notendum skulu vera á auglýsingasvæði, ekki í myndasafni eða spjalli. Fyrirtækjum er óheimilt að auglýsa á vefsvæðinu nema gegn greiðslu.
  12. Óheimilt er að birta efni á f4x4.is sem ekki er í samræmi við lög og reglur eða almennt velsæmi, þar með talið ærumeiðandi efni.
  13. Forsvarsmenn Ferðaklúbbsins 4x4 munu eftir fremsta megni reyna að tryggja öryggi þeirra gagna sem geymd eru á vefsvæðinu. Klúbburinn ber þó ekki ábyrgð á tjóni sem kann að orsakast af notkun vefsvæðisins eða ef vefsvæðið er ekki aðgengilegt af einhverjum ástæðum. Einnig ber klúbburinn ekki ábyrgð á gögnum sem geymd eru á búnaði vefsvæðisins ef þau tapast eða skemmast.
  14. Ferðaklúbburinn 4x4 áskilur sér rétt til þess að nota allt efni sem notendur vefsvæðisins birta á vefsíðunum, s.s. myndir, texta eða skrif á spjallið, í þágu starfsemi Ferðaklúbbsins, hvort sem það er til birtingar annars staðar á vefsvæðinu, í félagsritum eða öðrum vettvangi í nafni Ferðaklúbbsins. Önnur nýting á efni því er birtist á vefsvæðinu er óheimil án heimildar stjórnar klúbbsins og höfunda viðkomandi efnis.
Síðast uppfært: Sunnudagur, 16. ágúst 2009 21:30
 


Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 18 @08:00 - 05:00eh
Landgræðsluferð
Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010
Lau okt 23 @08:00 - 05:00eh
Litlunefndarferð