Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð
Vesturlandsdeild

Ferð með fatlaða 12. júní - Vesturlandsdeild

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Ferðaáætlun

09:00 frá Borgarnesi, 09:30 frá Akranesi - Hafnarfjörður - Bláfjöll - Pípuvegur - Grafningur og svo endað í grilli á Þingvöllum milli 12.30 til 14.30.

Hringt verður í alla bílstjóra þegar búið er að raða endanlega niður í bíla.
Ef það eru einhverjar spurningar hafið þá samband við Helgu Björgu í s.  699-8955

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 08. júní 2010 20:30
 

Ferð með fatlaða - Vesturlandsdeild

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Laugardaginn 12. júní er komið að árlegri ferð okkar hjá Vesturlandsdeild þar sem við bjóðum skjólstæðingum Svæðismiðlunar á rúntinn á jeppunum okkar og endum á góðum stað og grillum og höfum gaman.

Öllum er farið að hlakka mikið til og er skráning hjá þeim komin upp í 60 manns sem segir allt sem segja þarf um áhugann hjá þeim! Þetta er tilhlökkunarefni allt árið!

En við þurfum auðvitað að fá jeppa með í þessa ferð og það marga þar sem við höfum ekki verið með fleiri en tvo til þrjá farþega fyrir utan bílstjóra í hverjum bíl.

Ef þú hefur áhuga á að taka þá í þessari ferð þá endilega hafðu samband við Helgu Björgu í s. 699-8955 sem fyrst.

Með fyrirfram þökk

Stjórn Vesturlandsdeildar

 

Félagsfundur Vesturlandsdeildar mánudaginn 19. apríl

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Félagsfundur Vesturlandsdeildar verður haldinn í Jónsbúð mánudaginn 19. apríl kl 20:00

Sýndar verða myndir frá Vatnajökulsferð og einnig einhverjar myndir frá fyrra gosinu.

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar
 

Félagsfundi Vesturlandsdeildar 12. apríl frestað

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal

Félagsfundi Vesturlandsdeildar 12. apríl verður frestað þangað til á morgun eða næsta mánudag þar sem Vatnajökulsfarar hafa ekki skilað sér heim sökum veðurs. En þeir eru á heimleið núna og koma heim í nótt.

Sent verður sms og fólk látið vita nánar varðandi fundinn.

Kveðja
Stjórn Vesturlandsdeildar

 

Félagsfundur þriðjudaginn 16. mars

Senda í tölvupóst Prentvæn útgáfa Skoða sem PDF skjal
Þar sem það er fundur í Reykjavík í kvöld vegna ferðarinnar "I hjólför aldamótanna" hefur verið ákveðið að hafa fundinn á morgun, þriðjudaginn 16.mars.
Farið verður yfir kassann okkar góða sem inniheldur allt björgunardótið okkar. Bjössi og Óli ætla að fara yfir kassann og kenna okkur nokkur atriði sem gætu gagnast okkur ef eitthvað kemur upp á.
T.d. hvernig á að fara í beltið sem fylgir sigbúnaðinum og ýmislegt fleira.

Einnig verður rætt um Vatnajökulsferðina og ýmis félagsmál.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Kv. Stjórn Vesturlandsdeildar
 


Síða 1 af 4

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 18 @08:00 - 05:00eh
Landgræðsluferð
Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010
Lau okt 23 @08:00 - 05:00eh
Litlunefndarferð