Ferðaklúbburinn 4x4

Ferðaklúbburinn 4x4

... ferðafrelsi og jeppabreytingar

  • Stækka leturstærð
  • Sjálfgefin leturstærð
  • Minnka leturstærð

Umhverfisfasistarnir Ust

Umhverfisfasistarnir Ust

Pósturaf Ofsi » 29 Jan 2010, 22:40

Hvað finns félagsmönnum um lögguleik umhverfisstofnunar. Sem má sjá hér til hliðar.
Ætli þorrablótsmenn hafi fengið einkapóst frá sýslumanninum að akstur og áfengi fara ekki saman, eða hvort þeir hafi fengið póst frá umferðarstofum með áminningu um að spenna beltin.
Annars er áhugavert að þeir sýni klúbbnum áhuga núna. Þeir hafa ekki verið jafn áhugasamir að svar póstum frá klúbbnum, eða boð um aðstoð frá klúbbnum.
Ofsi
 
Póstar: 2354
Skráður: 04 Mar 2009, 11:56
Fullt nafn: Jón G Snæland
Félagsnúmer: R2096

Re: Umhverfisfasistarnir Ust

Pósturaf Krilid » 29 Jan 2010, 22:53

Ansi sérstakt skeyti. F4x4 hlýtur að vera félagsskapur umhverfishryðjuverkamanna sem er vissara að var við og láta vita að Stóri Bróðir sé að fylgjast með. Gaman gaman allir saman. Ætli þyrlunar verði busy um helgina.

Góða helgi
Agust
Krilid
 
Póstar: 314
Skráður: 04 Mar 2009, 11:57
Fullt nafn: Ágúst Þór Guðbergsson
Félagsnúmer: Ö1312

Re: Umhverfisfasistarnir Ust

Pósturaf olimag » 29 Jan 2010, 22:58

Þetta er auðvitað ótrúlegt útspil hjá Umhverfisstofnun. Að það skuli vera starfsmaður hjá stofnuninni sem sendir ákveðnum hópi fólks póst sem minnir á hvar skal keyra og hvar ekki. Þetta fordæmi hlýtur að gefa til kynna að Umhverfisstofun verði með fólk á sínum snærum sem fylgist með öllum ferðum á landinu og sendi viðkomandi ferðalöngum viðvaranir fyrir ferðir. Er þetta það sem skattpeningarnir okkar eiga að fara í ? Ég held að Umhverfisstofnun ætti að fara að huga að því hvað starfsmenn þeirra eru að sýsla við !

kv. Óli
olimag
 
Póstar: 465
Skráður: 04 Mar 2009, 11:56
Fullt nafn: Ólafur Magnússon
Félagsnúmer: R3756

Re: Umhverfisfasistarnir Ust

Pósturaf BaldvinZ » 29 Jan 2010, 23:13

Ég held að ég hafi sjaldan eða aldrei verið eins kjaftstopp. Þvílíkur póstur!
BaldvinZ
 
Póstar: 107
Skráður: 04 Mar 2009, 11:58
Fullt nafn: Baldvin Zarioh
Félagsnúmer: R4205

Re: Umhverfisfasistarnir Ust

Pósturaf fridfinnur » 29 Jan 2010, 23:15

Veit ekki alveg hvað mér finnst um áminninguna eða hvað menn vilja kalla þetta, þetta ágæt ef allir sem ferðast um svæðið fá slík bréf. Ef þetta er einsdæmi þá eru þetta kaldar kveðjur til klúbbsins. Nú er Setrið ekki inn á þessu svæði og ekkert sem gefur tilefni til þess að ferðast sé um friðlandið.

Annars er áhugavert að ekki er sama orðalag í þessari auglýsingu og reglum frá 87 og náttúruverndarlögum eða tillögum um stækkun friðlandsins frá 2007 því í þessari auglýsingu er ekki talað um að bílar eða vélknúin ökutæki meigi aka um á snjó og hjarni, þarna er einfaldlega talað um snjósleða og snjóbíla. Það er greinilegt að þarna er bannað að aka bílum það hafði farið framhjá mér áður þar sem ég hafði aðeins lesið tillögurnar um stækkun frá 2007. Hver ætli rökin fyrir því að útiloka að ferðast sé á jeppum á þessum slóðum ?
fridfinnur
 
Póstar: 88
Skráður: 04 Mar 2009, 11:58
Fullt nafn: Friðfinnur Freyr Guðmundsson
Félagsnúmer: R3845

Re: Umhverfisfasistarnir Ust

Pósturaf marteinn heidarsson » 29 Jan 2010, 23:18

Þetta er það sem koma skal velkomin í ESB !!!!!!!!!!!!!
marteinn heidarsson
 
Póstar: 10
Skráður: 18 Júl 2009, 13:14

Re: Umhverfisfasistarnir Ust

Pósturaf Ofsi » 29 Jan 2010, 23:25

ESB eða ekki Matti minn, þetta eru og hafa verið vinnubrögð Ust og Umhverfisráðuneytisins.
Umhverfisráðuneytið/ Ust= svik og prettir ohf
Ofsi
 
Póstar: 2354
Skráður: 04 Mar 2009, 11:56
Fullt nafn: Jón G Snæland
Félagsnúmer: R2096

Re: Umhverfisfasistarnir Ust

Pósturaf marteinn heidarsson » 29 Jan 2010, 23:31

Já það er satt Jón, maður er að sjá þessi vinnubrögð meira og meira hjá UST,nú held ég að 4x4 þurfi að fara og þá þú sem hefur staðið mest í þessu og með 4x4 og alla félagana með og láta þetta UST vita að svona vinnubrögð ganga ekki þó að Jóhanna og co vinni svona án þess að vera í sambandi við fólkið!!!!!!!!!!!!!!
marteinn heidarsson
 
Póstar: 10
Skráður: 18 Júl 2009, 13:14

Re: Umhverfisfasistarnir Ust

Pósturaf BaldvinZ » 29 Jan 2010, 23:33

marteinn: síðan hvenær erum við í ESB?
BaldvinZ
 
Póstar: 107
Skráður: 04 Mar 2009, 11:58
Fullt nafn: Baldvin Zarioh
Félagsnúmer: R4205

Re: Umhverfisfasistarnir Ust

Pósturaf marteinn heidarsson » 29 Jan 2010, 23:35

Er þetta eitthvað viðkvæmt Baldvin??
marteinn heidarsson
 
Póstar: 10
Skráður: 18 Júl 2009, 13:14

Næstu

Fara aftur á Allt annað

Hver er tengdur

Notandi að skoða þetta svæði: Engir skráðir notendur og 1 gestur

Innskráning

Borði

Dagatal

September 2010
M Þ M F F L S
30 31 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 1 2 3

Á döfinni

Lau sep 25 @08:00 - 05:00eh
Litlanefnd: Haustlitaferð
Mán okt 04 @20:00 - 10:30eh
Félagsfundur 4x4
Lau okt 09
Landsfundur árið 2010