Fórum á 5 bílum (eftir að einn helltist úr lestinni við Þjófakrók) yfir Langjökul og niður hjá girðingunni við Oddnýjargil. Skemmdar felgur, affelganir, festur og lítilsháttar bilanir á leiðinni urðu til þess að við komum í hlað á Hveravöllum á hádegi á laugardag eftir ca. 13 tíma frá Þjófakrók.
Tókum því rólega á Hveravöllum á lau. og fórum svo norður Kjöl á sun. í miklum krapa og tók það okkur um 5 tíma að komast að Seyðisá sem er um 8 km. spotti að upphækkuðum veg.