Í asahlákunni sunnudaginn 17 febrúar breyttist vegurinn í Laxárdal í Dölum í stórfljót leysingavatns.
Sófariddaravagninum mislíkaði eitthvað siglingin og lagði sig á bakið á kaf í fljótið. Mikil mildi að við feðgarnir skyldum sleppa ómeiddir og ódrukknaðir, en bíllinn fylltist af vatni.