Sælir félagar
Skálanefnd Eyjafjarðardeildar 4x4 boðar til vinnuferðar helgina 14. - 16 júní.
Það eru mörg verkefni sem bíða okkar að þessu sinni. Við ætlum að skipta um hurðir í
skálanum, laga þarf frárennsli WC og síðan eru hefðbundnu verkin, að laga girðingu og vatnslögn.
Umhverfisnefnd er með stórt verkefni á sinni könnu en það verður sáð í 8 hektara svæði
sem er verkefni sem við erum að vinna í samvinnu við Landgræðsluna.
Síðan þarf að planta 1000 birki plöntum á Torfuna og bera á hana áburð.
Það er áætluð brottför frá Skeljungi/Orkan föstudaginn 14.júní kl.18.30 og fyrir þá sem
vilja eða komast ekki á föstudaginn þá er brottför á laugardagsmorguninn 16.júní kl.09.00 frá Skeljungi/Orkan.
Félagar eru beðnir um að skrá sig hér á síðuni eða Facebook síðu Eyjafjarðardeildar 4x4 í
síðasta lagi miðvikudaginn 13.júní.
Hvetjum alla félaga til að mæta.
Kv.
Skálanefnd Eyjafjarðardeildar 4x4
Eyjafjarðardeild vinnuferð 14-16 júní
Who is online
Users browsing this forum: No registered users and 1 guest