Fréttir af Nýliðaferð 4x4 í Setrið

Jon Emil
Posts: 16
Joined: 2016-11-07 10:Nov:th

Fréttir af Nýliðaferð 4x4 í Setrið

Postby Jon Emil » 2018-01-20 09:Jan:th

Góðann daginn gott fólk.

Um kl. 9 löggðu 28 bílar af stað með 21 farþega frá Skeljungi Vestulandsvegi í átt að Setrinu.
Farið verður Kerlingarfjalla leiðin að Setrinu og planið er að koma heim Sóleyjarhöfðan en veðurspáin er ekki hagstæð fyrir morgundaginn svo að það kemur í ljós á morgun hvaða leið verður farið.
Fréttaritari kveður i bili og kemur með fleiri upplýsingar í kringum hádegið.
20180120_083300.jpg
20180120_083300.jpg (3.03 MiB) Viewed 5287 times
20180120_083206.jpg
20180120_083206.jpg (3.21 MiB) Viewed 5287 times
20180120_084329.jpg
20180120_084329.jpg (3.12 MiB) Viewed 5287 times
20180120_083311 (2).jpg
20180120_083311 (2).jpg (3.88 MiB) Viewed 5287 times

Jon Emil
Posts: 16
Joined: 2016-11-07 10:Nov:th

Re: Fréttir af Nýliðaferð 4x4 í Setrið

Postby Jon Emil » 2018-01-20 14:Jan:th

Var að tala við Hafliða formann og hópurinn er kominn að vegamótum Kjölur/Kerlingafjöll.
Færið er erfitt, þæfingur og mætti vera betra skyggni, nokkrir búnir að festa sig vel.
Svo rétt í þessu var einn að beygla felgu, vonandi fer það vel.
Meira síðar :)
Fréttaritarinn
7D3509FF-F7AD-4FAF-BFCA-1B9434A9F9F9.png
7D3509FF-F7AD-4FAF-BFCA-1B9434A9F9F9.png (267.5 KiB) Viewed 5303 times
Sést hérna hvernig skyggnið er
83FD77F9-7CB9-4802-99BF-2B700A914083.png
83FD77F9-7CB9-4802-99BF-2B700A914083.png (229.4 KiB) Viewed 5303 times

Jon Emil
Posts: 16
Joined: 2016-11-07 10:Nov:th

Re: Fréttir af Nýliðaferð 4x4 í Setrið

Postby Jon Emil » 2018-01-20 14:Jan:th

Var að fá þá fá fréttir að sá sem beyglaði felguna er kominn af stað.

Jon Emil
Posts: 16
Joined: 2016-11-07 10:Nov:th

Re: Fréttir af Nýliðaferð 4x4 í Setrið

Postby Jon Emil » 2018-01-20 22:Jan:th

Síðustu bílar eru að renna í Setrið, einn var skilinn eftir með brotinn öxul einhverstaðar á Loðmundarsvæðinu og byrjað er að fíra upp í grillinu og verður tekið hressilega á lambinu eftir daginn.
Heyri í Hafliða í fyrramálið með hvaða leið verður fyrir valinu til baka en það fer eftir veðri, það fara einhverjir sömu leið til baka til að sækja bílinn sem var skilinn eftir.

Jon Emil
Posts: 16
Joined: 2016-11-07 10:Nov:th

Re: Fréttir af Nýliðaferð 4x4 í Setrið

Postby Jon Emil » 2018-01-21 10:Jan:st

Góðann daginn.

Hópurinn er lagður af stað úr Setrinu og er stefnan tekin á Sóleyjarhöfðann í fínu veðri.
Bíllinn við Loðmund verður skilinn eftir og sóttur síðar.

Jon Emil
Posts: 16
Joined: 2016-11-07 10:Nov:th

Re: Fréttir af Nýliðaferð 4x4 í Setrið

Postby Jon Emil » 2018-01-21 14:Jan:st

Nú eru flestir komnir á malbikið og á heimleið, klafavesen á einum en gengur vel.
Þeir fengu smjörþef af krapa og í heildina gekk ferðin vel og allir sáttir þrátt fyrir þungt færi.

Fréttaritari þakkar áhorfið og kveður


Return to “Klúbburinn”

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 5 guests