Að lokinni jeppasýningu

fridrikh
Posts: 79
Joined: 2016-11-07 10:Nov:th

Að lokinni jeppasýningu

Postby fridrikh » 2018-09-20 11:Sep:th

Nú er lokið 35 ára afmælis sýningu okkar í Fífunni. Góður fjöldi gesta mætti á sýninguna og við seldum um 4000 aðgöngumiða og líklega má segja að um 8.000 manns hafi heimsótt okkur (með þeim sem fóru frítt inn).

Að halda svona sýningu er mikil vinna og er það frábært hversu mikla vinnu félagsmenn voru tilbúnnnir að leggja á sig til að gera sýninguna eins glæsilega og raun bar vitni.

Margir gesta okkar þökkuðu fyrir frábæra sýningu þegar þeir yfirgáfu svæðið auk þess sem við heyrum ekkert annað en að gestir hafi verið ánægðir með það sem þeir sáu.

Við í sýningarstjórn erum stoltir að hafa fengið að vinna með ykkur öllum og náð að gera þetta svona vel. Það er frábært að finna samtakamáttinn í félaginu í svona verkefnum.

Takk takk.
Sýningastjórn

Return to “Klúbburinn”

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests