Page 1 of 3

Árshátíð 4x4 3 nóvember

Posted: 2018-10-10 22:Oct:th
by Sveinbjorn
35 ára afmælisárshátíð Ferðaklúbbsins 4x4
Laugardaginn 3. nóvember 2018 í Súlnasal Radisson Blu Saga Hótel

Dagskrá:
Húsið opnar kl. 19:00 með fordrykk
Formaður klúbbsins, Sveinbjörn Halldórsson setur hátíðina kl. 19:30
Borðhald hefst kl. 20:00

Veislustjórn verður í öruggum höndum formannsins.
Boðið verður upp á gómsæta forrétti og steikarhlaðborð:

Súpa og forréttahlaðborð
Sætkartöflu- og graskerssúpa með brauðbollum.
Grafinn-, reykur- og heitreiktur lax, nauta carpaccio, hráskinka með klettasalati, rækjukokteill, reyktur makrlill á eggi.

Aðalréttahlaðborð
Nautaprime, lambalæri, kalkúnabringur, ristaðar kartöflur, sætar kartöflur, steikt rótargrænmeti, kartöflugratin, brúnkál, rauðvín- og bearnaise sósur.

Kaffi og konfekt


Pétur Jóhann mun stíga á svið milli rétta og flytur okkur nýjustu fréttir frá Alþingi og af Vatnajökulsþjóðgarði …
Hin margrómaða hljómsveit Brimnes frá Vestmannaeyjum sér svo um að halda uppi fjöri fram eftir nóttu 

Húsið lokar kl. 01:00

Nú þarf að fara að panta búið að lækka miðan í 7.500 kr. drífa sig áður en gjalkerinn kemur heim og hækkar miðaverðið.. Koma svo..

Re: Árshátíð 4x4 3 nóvember

Posted: 2018-10-10 22:Oct:th
by Sveinbjorn
Sveinbjörn mætir + 1

Re: Árshátíð 4x4 3 nóvember

Posted: 2018-10-10 22:Oct:th
by Sveinbjorn
Gísli Þór Þorkellsson 3 miða...

Re: Árshátíð 4x4 3 nóvember

Posted: 2018-10-10 23:Oct:th
by Stjani39
2 miða. Kristján Guðmundsson

Re: Árshátíð 4x4 3 nóvember

Posted: 2018-10-10 23:Oct:th
by hjaltisig
2 miðar. Hjalti Sigurðsson

Re: Árshátíð 4x4 3 nóvember

Posted: 2018-10-10 23:Oct:th
by Sveinbjorn
Jóhannes Þ. Jóahannesson pantar 2 miða..

Re: Árshátíð 4x4 3 nóvember

Posted: 2018-10-10 23:Oct:th
by Krilid
Ég var aðeins að glugga á matseðilinn. Mér finnst vanta að hann sé LKL vænlegur. Ætli það sé hægt að koma með sérpantanir. ? :D

Re: Árshátíð 4x4 3 nóvember

Posted: 2018-10-11 04:Oct:th
by siggi magg
sigurður g magnússon pantar 1 miða

Re: Árshátíð 4x4 3 nóvember

Posted: 2018-10-11 08:Oct:th
by jong
Jón G. Guðmundsson pantar 2 miða

Re: Árshátíð 4x4 3 nóvember

Posted: 2018-10-11 09:Oct:th
by Halldor_Sveinbjornsson
Halldór Freyr Sveinbjörnsson 2 miða