Kvennaferð Ferðaklúbbsins 4x4 verður farin helgina 8.-10. mars 2019
Heildarfjöldi einstaklinga í ferðina er 50 manns. Þegar fjöldi þátttakenda nær 50, þá lenda konur sjálfkrafa á biðlista.
Markmið ferðarinnar er að fara í Setrið (http://www.f4x4.is/skalar/setrid/), hálendisskála Ferðaklúbbsins 4x4.
Lagt verður af stað á föstudegi í tveim hollum. Brottfarartímar verða auglýstir þegar nær dregur en reikna má með að fyrra holl leggi af stað um og uppúr hádegi á föstudegi og seinna holl sirka 4 sama dag, frá Orkunni á Vesturlandsvegi (https://www.orkan.is/Orkustodvar/stod?s ... landsvegur).
Ekki er búið að velja hvaða leið verður farin, en það má lesa um hefðbundar leiðir hér http://www.f4x4.is/skalar/setrid/leidir-ad-setrinu/.
Þessi ferð er hugsuð fyrir konur í ferðaklúbbnum 4x4 sem hafa áhuga á fjallaferðum að vetri til. Með í ferð verða reyndar fjallakonur frá klúbbnum sem munu leiðbeina þátttakendum og aðstoða eftir bestu getu. Þátttakendur bera sjálfir ábyrgð á sínum farartækjum. Þátttakendur verða skipaðir í hópa og yfir hverjum hópi verður reyndur hópstjóri. Þær sem óska sérstaklega að fá að vera í hóp með einhverri ákveðinni þurfa að taka það fram í skráningu. Við skráningu þarf að skrá reynslu bílstjóra og kóara.
Til að taka þátt í ferðinni verður að vera á breyttum jeppa. Til viðmiðunar, þá er hægt að nota eftirfarandi töflu miðað við þyngd jeppa
35" dekk, 1,5 -2 tonn
38" dekk, 2-3 tonn
44" dekk, 3-4 tonn
>44" fyrir þyngri jeppa
Þær sem eru í vafa um jeppa sína geta haft samband við okkur í Kvennanefndinni á félagskvöldum og opnum húsum hjá klúbbnum, á netfangið kvennanefnd@f4x4.is og/eða í gegnum Facebook.
Við lofum að sjálfsögðu súper skemmtilegri ferð með föstum liðum eins og sleðakeppni, kvöldvöku, frábærum bíltúrum, sameiginlegum mat á laugardagskvöldinu, límmiðum á bílana, kvennaferðarpeysum og fleiru skemmtilegu.
Kvennanefndin stendur fyrir skemmtilegum hittingum fyrir ferðina og það er um að gera að fylgjast með á FB í hópnum "Kvennaferð 4x4 2019" (https://www.facebook.com/groups/10150124097050241/) því þessir hittingar verða auglýstir þar og á "F4x4 spjallsíða" hópnum. Velkomið að henda inn myndum úr fyrri ferðum í þessa hópa. Um að gera að bæta í áhugasömum vinkonum í kvennaferðarhópinn sem gætu viljað splæsa í eins og einn jeppa og skella sér með Tja eða bara fá lánaðan jeppa hjá vini eins og gerst hefur
Svo að sjálfsögðu erum við allar rosa duglegar að taka myndir, bæði í undirbúningi og í ferðinni sjálfri. Deilum og notum myllumerkið #kvk4x4ferd2019
Skráning fer fram á síðunni:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIp ... A/viewform
Kvennaferð Ferðaklúbbsins 4x4 verður farin helgina 8.-10. mars 2019
Who is online
Users browsing this forum: No registered users and 5 guests