Góðann dag öll sömul.
Ég var að heyra í Hafliða formanni Litlunefndar.
Það eru um 30 bílar í ferðinni og eru þeir að lenda á Þingvöllum í snjómuggu.
Stefnan er tekin á Meyjarsæti, Slunkaríki og á Langjökul,
heyri aftur í honum í kringum hádegið.
Ferðafréttaritari F4x4
Fréttir af Litlunefndarferð á Langjökul
Re: Fréttir af Litlunefndarferð á Langjökul
Var að fá sms frá Hafliða, eru að lenda í Slunkariki og ætla að snúa við vegna lélegs skyggnis.
Re: Fréttir af Litlunefndarferð á Langjökul
Hópurinn er kominn niður að Tjaldafelli og er að pumpa í dekkin svo er stefnan tekin á bæinn.
Fréttaritarinn
Fréttaritarinn
Re: Fréttir af Litlunefndarferð á Langjökul
Sælir.
Að sjálfsögðu er búið að taka fullt af myndum úr ferðinni sem flæða inn á nýjan vef klúbbsins.
Kv. SBS.

Last edited by SBS on 2017-01-14 23:Jan:th, edited 1 time in total.
Re: Fréttir af Litlunefndarferð á Langjökul
Smá update .........
þeir eru að tínast á línuveginn. Pumpuðu reynar aðeins of fljótt í, einhverjir pikk festu sig en því var reddað skjótt.
Það brotnaði eitt framdrif og ein skipting lætur eitthvað illa en sá bíll er á ferðinni.

Gaman að fá svona fréttir - takk Jón Emil
Re: Fréttir af Litlunefndarferð á Langjökul
SBS wrote:Sælir.
Að sjálfsögðu er búið að taka fullt af myndum úr ferðinni sem flæða inn á nýjan vef klúbbsins.
Kv. SBS.
Já, það vantar alveg myndir úr þessari ferð inn á myndasíðu klúbbsins. Það var ætlunin að láta myndir úr ferðinni rúlla á opnu húsi í gærkvöld, en þær voru allar inni á Fésbókinni sem býður ekki upp á sjálfvirka myndasýningu. Þannig að það voru bara sýndar myndir úr öðrum ferðum.
Re: Fréttir af Litlunefndarferð á Langjökul
Það er alger synd hve lítið af myndum fara nú til dags í albúmin hér inni og sökudólgurinn er Facebook. Þar er afar auðvelt að skella inn myndum, allt mjög interactívt og allir geta flett í þessu með auðveldum hætti. F4x4 verður bara að safna þeim saman og setja sjálfir í myndaalbúmin hér. Þetta er því miður staðreynd.
Re: Fréttir af Litlunefndarferð á Langjökul
Sælir.
Þakka ykkur fyrir undirtektir og hvatningu á að menn setji myndir inn á vefinn okkar.
khs. Ég er frægur fyrir að vera ósammála mönnum og hér er eitt tilvikið í viðbót. Við megum ekki telja okkur og öðrum trú um að þetta sé FaceBook að kenna. Annað hvort eru menn í klúbbnum eða ekki. Þegar menn fara í ferðir á vegum F4x4 byrja þeir eftir ferð að setja myndirnar inn á myndasíðuna hér. Ef þeir vilja setja þær inn annarsstaðar líka gera þeir það og kemur það engum við.
Ef ég vel að setja mínar myndir inn á FaceBook er það mín ákvörðun en ekki FaceBook. Svo er það líka hlutverk nefnda að hvetja þátttakendur til að setja myndirnar sínar hér inn.
Kv. SBS

Með góðum og svo batnandi mönnum er best að lifa. http://www.f4x4.is/myndasvaedi/myndir-f ... langjokul/
Nú er komin ein myndasería úr ferð Litlunefndar inn á myndasafn F4x4. Það er Aron ( Íkorninn) Sem er með frábærar myndir úr ferðinni.
Þetta skiptir öllu máli fyrir starf klúbbsins að menn geti upplifað stemninguna í ferðinni og koma svo með næst.
Félagsmenn hættið þessu bölvaða Fésbókar-rugli og komið hér inn á gott spjall og þokkalegt myndasafn sem á fljótlega eftir að verða frábært.

Who is online
Users browsing this forum: No registered users and 5 guests