Örnefni kringum Setrið.

SBS
Posts: 48
Joined: 2016-12-08 13:Dec:th

Örnefni kringum Setrið.

Postby SBS » 2016-12-13 23:Dec:th

Sælir.

Ég sá áhugaverða umræðu á eldra spjallsvæði klúbbsins. Þar vekur Jón G. Guðmundsson máls á örnefnum í kringum Setrið. Það hittir vel á að vekja þennan þráð upp nú. Vonandi er þetta í lagi hjá mér. Því miður kann ég ekki að endurvekja þráðinn en tók afrit af honum.

Þráðurinn er hér: 22.08.2016 at 12:51
Jón G. Guðmundsson.

Ég sá í síðustu ferð upp í Setur stórt kort uppi á vegg, af landssvæðinu milli Þjórsár og Hvítár á hálendinu þar sem búið var að safna saman örnefnum á svæðinu sem sjást hvergi annarsstaðar á korti.

Þetta kort var unnið af afréttarfélögum sveitarfélaganna, og ég sá á kortinu að það hafði verið safnað upplýsingum frá gömlum fjallkóngum og fjallafálum sveitanna.

Ég fór að grafast fyrir hvort þessi örnefni væru til hjá Árnastofnun (sem tók yfir örnefnastofnun) og fékk svar í dag. Þessi örnefni ættu að koma inn á næstu uppfærslu örnefna í IS50V kortagunninum í desember næstkomandi.

Þannig að nú fáum við eitthvað fleira en Loðmund og Þverfell til að miða við á leiðinni upp í Setur.

jong
Posts: 122
Joined: 2016-12-09 08:Dec:th

Re: Örnefni kringum Setrið.

Postby jong » 2016-12-14 08:Dec:th

Takk fyrir þetta Sigurður.
Já það er vonandi að þetta komi inn á örnefnakortið hjá Landmælingum, en ég sé ekkert þar ennþá.


Return to “Klúbburinn”

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests