Page 2 of 3

Re: Patrol powered by Chevrolet

Posted: 2017-11-09 17:Nov:th
by hsm
Ég var með kynningu á október félagsfundi Ferðaklúbbsins 4x4.
Meðfylgjandi eru glærunar sem ég bjó til.
Vélarvana patrol.pdf
(695.16 KiB) Downloaded 1000 times

Re: Patrol powered by Chevrolet

Posted: 2017-11-10 18:Nov:th
by fridrikh
Spennandi verkefni hjá þér Hafliði
Það verður gaman að fylgjast með hvernig þetta þróast allt.

Re: Patrol powered by Chevrolet

Posted: 2017-11-10 23:Nov:th
by draugsii
já þetta verður flott

Re: Patrol powered by Chevrolet

Posted: 2017-11-12 22:Nov:th
by freyr
Gaman að þessu. Ég er sérstaklega ánægður með þarfagreininguna: "Hvað þarf patrol- meira afl, hvað þarf patrol ekki- meiri þyngd" ;-)

Re: Patrol powered by Chevrolet

Posted: 2017-11-14 20:Nov:th
by hsm
Ég tók saman nokkrar myndir https://photos.app.goo.gl/GvHMiD0e9saCVzhy2
Það er ágætur gangur á þessu. Í næstu viku verður væntanlega byrjað að tengja rafmagnið og setja drifsköftin undir.
DSC_1974.JPG
DSC_1974.JPG (6.48 MiB) Viewed 12446 times

Re: Patrol powered by Chevrolet

Posted: 2017-11-15 11:Nov:th
by fridrikh
Sælir
Það er svaka gangur í þessu. Gaman að sjá þessar myndir og fá að fylgjast með framgangi.

Re: Patrol powered by Chevrolet

Posted: 2017-11-15 21:Nov:th
by Jonas_Jonatansson
Skemmtilegt verkefni hjá þér. Er sjálfur búinn að vera með 6lítra LS vél (LY6) og 6L80 skiptingu í willys jeppa í um þrjú ár. Gekk nokkuð vel að fá þetta til að virka. Smá lærdómskúrfa í upphafi. Vél og skipting hafa bara mallað síðan.

Re: Patrol powered by Chevrolet

Posted: 2017-11-15 23:Nov:th
by hsm
Skemmtilegt verkefni hjá þér. Er sjálfur búinn að vera með 6lítra LS vél (LY6) og 6L80 skiptingu í willys jeppa í um þrjú ár. Gekk nokkuð vel að fá þetta til að virka. Smá lærdómskúrfa í upphafi. Vél og skipting hafa bara mallað síðan.
Takk fyrir það. Þetta er spennandi og gengur vonandi upp :) Það er mikill kostur við þessar vélar og skiptingu hversu auðvellt er að verða sér útum upplýsingar. Smá google-vinna og maður finnur yfirleitt svarið.

Re: Patrol powered by Chevrolet

Posted: 2017-11-16 08:Nov:th
by Jonas_Jonatansson
Þetta gengur upp hjá þér. Engar áhyggjur af öðru. Helsta hindrunin hjá mér tengdist handskiptingu á sjálfskiptingunni. Leystist fljótlega farsællega. Virkaði illa að keyra í Drive á fjöllum í þungu færi. Ég reyndar lækkaði drifhlutföll hjá mér um daginn. Fór úr 4.1 í 5.13 (á 38 tommum). Bíllinn mun skemmtilegri þannig. Vona að þetta haldi. Áður var hann á full litlum snúningi á crúsi. Gat ekki ákveðið sig hvort keyra ætti í 5 eða 6 gír.

Re: Patrol powered by Chevrolet

Posted: 2017-11-20 14:Nov:th
by R-1653
Ég tók saman nokkrar myndir https://photos.app.goo.gl/GvHMiD0e9saCVzhy2
Það er ágætur gangur á þessu. Í næstu viku verður væntanlega byrjað að tengja rafmagnið og setja drifsköftin undir.
DSC_1974.JPG
Désk. er þetta flott hjá þér, Hafliði. Ég hef alltaf verið veikur fyrir Patrol, en aflleysið hefur komið í veg fyrir að ég hafi reynt að eignast slíkan. Ömurlegur galli á annars frábærum jeppa.
En þessi galli er alla vega úr sögunni hjá þér!