Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4x4 2017

Ulfr
Posts: 16
Joined: 2017-01-09 22:Jan:th

Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4x4 2017

Postby Ulfr » 2017-01-09 23:Jan:th

Nýliðaferð ferðaklúbbsins 4x4 er á næsta leiti.
Ferðin verður haldin 4. til 5. Mars. Ferðin verður einnig kynnt á félagsfundi fyrsta mánudag Febrúars.

Þáttökugjald er 5000 kr en 3000 kr fyrir félagsmenn 30 ára og yngri
Hugmyndin að baki þessu er að hvetja yngri félagsmenn með í ferðina.

Skráning er hafin og best að tilkynna sig inn hér á þræðinum eða senda póst á samuel@ulfr.net með upplýsingum. Einnig verður hægt að skrá sig á félagsfundinum 6. Febrúar og á opnu húsi 8. Febrúar.

Upplýsingar sem þurfa að koma fram eru eftirfarandi:

* Nafn Bílstjóra
* Félagsnúmer
* GSM
* Bíltegund
* Bílnúmer
* Dekkjastærð
* VHF?
* GPS?
* Önnur fjarskiptatæki?
* Spil?
* Annað?
* Nafn Kóara
* GSM Kóara
* Félagsnúmer

Ferðaáætlun
Ferðinni verður heitið í skála Ferðaklúbbsins 4x4, Setrið og verður lagt af stað frá Skeljungi á Vesturlandsvegi kl 09:00 að Laugardagsmorgni þar sem farið verður upp Sóleyjarhöfðann inn að Setri, um kvöldið er síðan grill og lagt af stað heimleiðis árla Sunnudags eftir tiltekt og verður ferðaplan eftir veðri og færi en leiðir sem eru í boði verða Sóleyjarhöfðinn, Klakkur og Kerlingafjöll. Það verður sæti fyrir 17 bíla og er hámark tveir í bíl. Hugsanlegt verður að víkja frá þeirri reglu um hámarksfjölda í bíl ef ekki næst að fullmanna ferðina en það þarf að gerast í samráði við fararstjóra.

Til að komast með í ferðina þarf að hafa eftirfarandi hluti á hreinu:

* 38" dekk eða stærra eftir þyngd bíls - Fararstjórar meta hæfi bíla á kynningarkvöldi sem haldið verður á Miðvikudagskveldi í vikunni fyrir ferð en einnig er hægt að hafa samband við mig hér á þessum þræði eða í tölvupóst samuel@ulfr.net
* VHF Bílstöð - Handstöð dugar ef hún er tengd útiloftneti og er straumfædd frá bíl en ekki um eigin rafhlöðu.
* GPS Tæki.
* Teygjuspotti
* Skófla
* Dráttarbiti að framan og aftan eða sambærilegur búnaður sem treystandi er að draga bíl á án mikillrar fyrirhafnar.
* Að vera temmilega óreyndur í lengri vetrarferðum.
* Að bíllinn sé í lagi fyrir ferð.
* Greiddur félagsmaður í Ferðaklúbbnum 4x4, boðið verður upp á að skrá sig í klúbbinn og greiða félagsgjöld fyrir ferð á kynningarkvöldi.


Ef þú ert óviss hvort bíllinn teljist hæfur, þá er þér velkomið að senda póst á samuel@ulfr.net með fyrirspurn ásamt upplýsingum um bíl.
Birtur verður meira tæmandi búnaðarlisti fyrir ferð sem og á kynningarkveldi fyrir ferðina. Á kynningarkveldi verður farið yfir GPS og rötun, notkun stuðaratjakka, teygjuspotta, góða siði í fjarskiptum og komið inn á VHF fjarskipti og hvernig þau virka.

O̶p̶n̶a̶ð̶ ̶v̶e̶r̶ð̶u̶r̶ ̶f̶y̶r̶i̶r̶ ̶s̶k̶r̶á̶n̶i̶n̶g̶u̶ ̶s̶í̶ð̶a̶r̶ ̶á̶s̶a̶m̶t̶ ̶t̶i̶l̶k̶y̶n̶n̶i̶n̶g̶u̶ ̶u̶m̶ ̶k̶o̶s̶t̶n̶a̶ð̶ ̶í̶ ̶f̶e̶r̶ð̶ ̶o̶g̶ ̶v̶e̶r̶ð̶u̶r̶ ̶þ̶a̶ð̶ ̶t̶i̶l̶k̶y̶n̶n̶t̶ ̶h̶é̶r̶ ̶í̶ ̶þ̶e̶s̶s̶u̶m̶ ̶þ̶r̶æ̶ð̶i̶. Ég hvet félagsmenn til að vera duglegir við að benda vinum og ættingjum sem þeir þekkja og gætu haft gaman af þessari ferð til að fylgjast með og skrá sig til leiks!

Ulfr
Posts: 16
Joined: 2017-01-09 22:Jan:th

Re: Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4x4 2017

Postby Ulfr » 2017-02-06 13:Feb:th

Minni á félagsfund í kvöld þar sem hægt verður að skrá sig sem og að nú er opið fyrir skráningu í ferðina.

Ulfr
Posts: 16
Joined: 2017-01-09 22:Jan:th

Re: Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4x4 2017

Postby Ulfr » 2017-02-13 03:Feb:th

Þeir sem hafa áhuga á að mæta en eru ekki með bíl eru hvattir til að skrá sig hér á þræðinum eða senda póst á mig og við reynum eftir fremsta megni að raða kóörum á þá bíla sem hafa áhuga að taka random kóaara með sér. Engin loforð þó. Nú eru 6 bílar skráðir og því pláss fyrir fleiri.

Sveinbjorn
Posts: 90
Joined: 2016-11-03 12:Nov:rd

Re: Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4x4 2017

Postby Sveinbjorn » 2017-02-14 11:Feb:th

Kristján Guðmundsson
félagsnr. 4251
Musso 44"
stjani@stjani.is

Ulfr
Posts: 16
Joined: 2017-01-09 22:Jan:th

Re: Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4x4 2017

Postby Ulfr » 2017-02-15 21:Feb:th

10 bílar skráðir til leiks. 7 pláss eftir og eitthvað af kóaara sætum laus þar sem ekki allir hafa skráð kóaara.

Ulfr
Posts: 16
Joined: 2017-01-09 22:Jan:th

Re: Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4x4 2017

Postby Ulfr » 2017-02-17 21:Feb:th

13 bílar skráðir og því hver að verða síðastur, ef fleiri skrá sig fara þeir á biðlista og verða teknir inn í réttri röð ef menn heltast úr lestinni. :)
Þetta stefnir í hörkuferð!

Ulfr
Posts: 16
Joined: 2017-01-09 22:Jan:th

Re: Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4x4 2017

Postby Ulfr » 2017-02-21 02:Feb:st

15 bílar skráðir og nokkur laus sæti fyrir kóara eða aukasæti. (Þeir sem óska eftir aukasætum sæta afgangi, svo ef það bætist við ferðina fá fleiri bílar en auka farþegar að koma með).
Allir sem vilja taka þátt þurfa að vera búnir að greiða fyrir ferðina fyrir kynningarkvöldið eða borga á kynningarkveldi. Þeir sem ekki hafa greitt þá fá ekki aðgöngu að ferð.

Ferlar, hvernig á að greiða og fleiri upplýsingar fyrir ferð verða sendar út á morgun.

Ef það eru einhverjir sem hafa áhuga á að taka að sér kóara þá hvet ég þá til að hafa samaband við mig og sömuleiðis þeir sem hafa áhuga á að vera kóaarar.

Ulfr
Posts: 16
Joined: 2017-01-09 22:Jan:th

Re: Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4x4 2017

Postby Ulfr » 2017-03-02 03:Mar:nd

Minni á kynningarkvöld Fimmtudaginn 2. Mars kl 20:00 í félagsheimili Ferðaklúbbsins að Síðumúla 31.
Enn er laust pláss fyrir einn bíl í ferðina.

logimar
Posts: 3
Joined: 2017-01-11 20:Jan:th

Re: Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4x4 2017

Postby logimar » 2017-03-05 09:Mar:th

Eitthvað að frétta af ferðalöngum í nýliðaferðinni?

SBS
Posts: 48
Joined: 2016-12-08 13:Dec:th

Re: Nýliðaferð Ferðaklúbbsins 4x4 2017

Postby SBS » 2017-03-12 22:Mar:th

Sælir.

Ég vil nú taka undir með Loga. Eru engar fréttir (gamlar) til handa okkur frá síðustu nýliðaferð sem var á vegum klúbbsins. Þá á ég við frásagnir hér á spjallinu og myndaseríur.

Kv. SBS.


Return to “Klúbburinn”

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests