35"
Posted: 2018-12-18 11:Dec:th
Ég vil þakka fyrir þetta flotta nýja félagsskírteini sem var að berast og fyrir hátíðarkveðjur.
Svo þarf ég að koma með dálitla athugasemd. Í bréfinu frá klúbbnum segir m.a.: "Dagskrá vetrarstarfsins hefur verið ákveðin og má nefna að Litlanefnd (minni dekk en 35") og ný Ferðanefnd (stærri en 35" dekk) verða með spennandi fjallaferðir." Samkvæmt orðanna hljóðan virðist ekki ætlast til að 35" dekk séu yfirleitt gjaldgeng í þessar ferðir klúbbsins. Nú þykist ég vita að ekki sé ætlunin að meina þeim þátttöku sem eru á þessari dekkjastærð, en þetta er óheppilega orðað. Því hlýt ég að líta svo á, að 35" dekk séu gjaldgeng í báða þessa ferðaflokka. Þó mætti t.d. takmarka notkun 35" dekkja í ferðir Ferðanefndar við bíla undir 2,5 tonnum.
Með bestu kveðjum.
Sverrir Kr.
R-0155.