Page 1 of 1

Næsta Litlunefndarferð verður 11. mars

Posted: 2017-02-22 23:Feb:nd
by hsm
Þar sem nýliðaferð er sömu helgi og næsta ferð átti að vera, þá höfum við ákveðið að fresta ferðinni um eina viku. Stefnum að því að fara 11. mars. Eins og auglýst var í haust, þá verður þetta millibílaferð, miðuð við 35" breytta bíla.
Markmið ferðarinnar er að komast upp á topp Skjaldbreiðar til að taka mynd af hópnum og frábæru útsýni.

Opnað verður fyrir skráningu í síðasta lagi viku fyrir brottför. Munið að miðvikudaginn 8. mars verðum við á opnu húsi Klúbbsins og kynnum ferðina og svörum fyrirspurnum.

Fyrir hönd Litlunefndar,
Hafliði

Re: Næsta Litlunefndarferð verður 11. mars

Posted: 2017-02-23 09:Feb:rd
by siggi magg
Svolítið sérstakt hvað það þarf alltaf að troða þessum ferðum á sömu dagsetningu