Aðalfundur Ferðaklúbbsins 4×4 2023

Aðalfundur Ferðaklúbbsins 4×4 2023 verður haldinn mánudaginn 8. maí kl. 20:00 í húsnæði klúbbsins, Síðumúla 31 (gengið inn að neðanverðu), Reykjavík.
Í lögum klúbbsins (https://f4x4.is/wp-content/uploads/2017/02/2017-lög-Ferðaklúbbsins-4×4-final.pdf) er fjallað um Aðalfund klúbbins í 3. grein og hljóðar hún þannig:

Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málefnum félagsins. Hann skal haldinn árlega í maí
mánuði.

Fundurinn skal boðaður félagsmönnum með auglýsingu á forsíðu á vefsíðu félagsins með
minnst sjö daga fyrirvara. Í fundarboði skal greina fundarefni svo og fjárhagslegar tillögur,
sem ætlast er til að bornar verði undir atkvæði. Rétt til setu á aðalfundi hafa allir félagar í
öllum deildum og móðurfélagi sem hafa staðið full skil á gjöldum til félagsins. Hinir sömu
hafa einnig atkvæðisrétt á aðalfundi.

Á dagskrá aðalfundar skulu vera venjuleg aðalfundarstörf, þ.e:

1. Setning fundar og dagskrá kynnt.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
4. Umræða um skýrslu stjórnar.
5. Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
6. Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
7. Skýrslur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
8. Lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum.
9. Kjör stjórnar, varamanna og fastanefnda.
10. Kjör Skoðunarmanna.
11. Önnur mál.
12. Fundarslit.

Fyrir aðalfundinn liggja lagabreytingar og er kynning á þeim í eftirfarandi skjali Lög Ferðaklúbbsins 4×4 2023