Aðalfundarboð Ferðaklúbbsins 4×4 (F4x4)

Aðalfundur Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldinn mánudaginn 21.maí í sal klúbbsins að Eirhöfða 11, skemmu 3.  

Fundurinn hefst kl 20:00. Rétt til setu á fundinum hafa allir skuldlausir félagar og skulu þeir framvísa gildu félagsskírteini.  

Dagskráin er skv. lögum félagsins:

  1. Setning fundar og dagskrá kynnt.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  3. Skýrsla stjórnarinnar um störf félagsins á liðnu starfsári.
  4. Umræða um skýrslu stjórnar.
  5. Skoðaðir reikningar lagðir fram og skýrðir.
  6. Umræða um reikninga og þeir bornir upp til samþykktar.
  7. Skýrslur nefnda, ef kjörnar hafa verið.
  8. Tillögur/lagabreytingar frá stjórn, nefndum eða félagsmönnum.
  9. Kjör stjórnar, varamanna og fastanefnda.
  10. Kjör Skoðunarmanna.
  11. Önnur mál.
  12. Fundarslit.

Skildu eftir svar