Árshátíð Ferðaklúbbsins 4×4 3. nóv. 2018

Árshátíð Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldin á Hótel Sögu laugardaginn 3. nóvember 2018.

35 ára afmælisárshátíð Ferðaklúbbsins 4×4
Laugardaginn 3. nóvember 2018 í Súlnasal Radisson Blu Saga Hótel

Dagskrá:
Húsið opnar kl. 19:00 með fordrykk
Formaður klúbbsins, Sveinbjörn Halldórsson setur hátíðina kl. 19:30
Borðhald hefst kl. 20:00

Veislustjórn verður í öruggum höndum formannsins.
Boðið verður upp á gómsæta forrétti og steikarhlaðborð:

Súpa og forréttahlaðborð
Sætkartöflu- og graskerssúpa með brauðbollum.
Grafinn-, reykur- og heitreiktur lax, nauta carpaccio, hráskinka með klettasalati, rækjukokteill, reyktur makrlill á eggi.

Aðalréttahlaðborð
Nautaprime, lambalæri, kalkúnabringur, ristaðar kartöflur, sætar kartöflur, steikt rótargrænmeti, kartöflugratin, brúnkál, rauðvín- og bearnaise sósur.

Kaffi og konfekt

Pétur Jóhann mun stíga á svið milli rétta og flytur okkur nýjustu fréttir frá Alþingi og af Vatnajökulsþjóðgarði …
Hin margrómaða hljómsveit Brimnes frá Vestmannaeyjum sér svo um að halda uppi fjöri fram eftir nóttu 

Húsið lokar kl. 01:00

Nú þarf að fara að panta búið að lækka miðan í 7.500 kr. drífa sig áður en gjalkerinn kemur heim og hækkar miðaverðið.. Koma svo..

Miðaverð 7.500,-