
- This event has passed.
Kvennaferð 2020 – undirbúningur
27.02.2020 @ 18:00 - 22:00
Það er komið að árlegri Kvennaferð f4x4 sem farin verður 6.-8. mars nk í Setrið.
Þetta kvöld, sem þér er nú boðið á, í aðdraganda ferðar verður undirbúningshittingur fyrir ferðina okkar ásamt því að vera kynning fyrir konur sem langar að ferðast á fjöllum á jeppum. Vönduð dagskrá í smíðum sem inniheldur m.a. örfyrirlestra um ferðaöryggi, hlutverk kóara og ýmislegt fleira. Boðið verður upp á vörukynningar og verklegar æfingar í mikilvægum atriðum á fjöllum eins og hvernig skal varalita sig á ferð, tappa dekk, binda réttu hnútana oflr.
Við hvetjum allar konur, hvort sem þær ætla með núna eða síðar til að koma og taka þátt í þessu skemmtilega kvennakvöldi sem er framundan. Í lok kvölds verður einnig farið yfir leiðarval, afhendingu límmiða á bílana oflr.
Boðið verður upp á léttar veitingar
Ef þú átt enn eftir að skrá þig þá er skráningalinkurinn hér: https://docs.google.com/