Félagsfundur 2. Desember

Næsti félagsfundur Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldinn á Hótel Natura þann 2. Desember næstkomandi og hefst hann stundvíslega kl 20:00. Athugið breytta dagskrá.

  • Innanfélagsmál
  • Ferðamannapassinn
  • Stórferð 2014
  • Skemmtinefnd kynnir skemmtilega dagskrá
  • Kynning á ljósmyndun, Gréta Guðjónsdóttir, kennari í ljósmyndun heldur erindi.
  • Myndasýning í boði Jeep gengisins.

Kaffihlé verður um 21:00 og eru félagsmenn hvattir til að fjölmenna í aðventuskapinu.