Félagsfundur F4x4

Næsti félagsfundur Ferðaklúbbsins 4×4 verður haldinn 1. október á Hótel Natura (áður Hótel Loftleiðir) og hefst fundurinn stundvíslega klukkan 20:00.

Dagskrá fundarins er sem hér segir:

  • Innanfélagsmál
  • Landsfundur Ferðaklúbbsins næstkomandi helgi
  • Vetrarstarfið (Árshátíð, opin hús og fleira)
  • Snorri Ingimarsson segir frá starfi stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs og hlutverki sínu þar sem áheyrnafulltrúi Samtaka útivistafélaga (Samút). Einnig fjallar hann um verndaráætlanir og samgöngumál innan VJÞ. Þá mun Snorri minnast á nýlega vettvangsferð stjórnar VJÞ að Langasjó og um Vonarskarð.
  • Myndasýning: Vikfrafellsleið og Vonarskarð – Kvikmynd sem tekin var fyrir Ferðaklúbbinn úr flugvél í ágúst síðastliðna.

Kaffihlé verður um 21:00

 

Skildu eftir svar