Ferðalag í Setrið.

Helgina 1. – 3. mars næstkomandi ætla skemmti- og skálanefnd Ferðaklúbbsins 4×4 að standa fyrir (bingó) ferð í Setrið, skála félagsins.

Ferðin er hugsuð fyrir félagsmenn þ.e. lágmarkið er að hver og einn bílstjóri sé félagsmaður og æskilegt, en ekki skilyrði, að sá sem með honum ferðast sé einnig meðlimur í F4x4.

Reiknum með að selja að hámarki 45 „miða“ svo vel fari um alla gesti á meðan á sameiginlega borðhaldinu stendur.

Skráning hefst á vef félagsins www.f4x4.is fimmtudagskvöldið 14. febrúar kl. 21:00.

Verðið er kr. 5000 á mann og skal greiðsla hafa borist í síðasta lagi 20. febrúar inn á reikning 0516-26-204444, kennitala: 701089-1549, tilvísun Bingóferðin.  Einnig er hægt að hafa samband við skrifstofuna á opnunartíma í síma 568-4444 ef viðkomandi vill greiða með kreditkorti. Sjá upplýsingar um opnunartíma skrifstofunnar á vef félagsins.

Ef ekki er búið að ganga frá greiðslu fyrir tilskilinn tíma fellur viðkomandi út af listanum. Innifalið er gisting í tvær nætur ásamt lúxusmáltíð á laugardagskvöldinu og er verðið það sama hvort sem gist er eina nótt eða tvær.

Dagskráin er enn í mótun en við lofum góðri skemmtun og stemmingu sem enginn ætti að vera svikinn af.

Skálanefnd/Skemmtinefnd F4x4.

Skildu eftir svar