Gps og ferðamennsku námskeið í Fjallaskarði

Austurlandsdeild heldur Námskeið í Fjallaskarði 28-30 mars.

Námskeiðið hefst kl 21 á föstudagskvöld .

Dagskráin er þannig.

Föstudagur;

2100-2300. Fyrirlestur um almenna ferðamennsku- Lestur veðurspáa ofl

2400. Ljósin slökkt og ró kominn á

Laugardagur;

kl 0800-0900 Morgunmatur

0900-1200 Stutt ágrip í grunnartiðum siglingafræði Farið yfir og kennt notkun GPS staðsetningatækja

1200-1300Hádegishlé

1300-1500. Framhald á GPS kennslu

1500-1700 Leystar þrautir með staðsetningartækjum.

1800. Sameiginlegur Kvöldverður

1930 Kvöldvaka Endurfluttur annáll frá síðasta Þorrablóti auk almennrar gleði

kl 2400. Allir að sofa í hausinn á sér

Sunnudagur. kl 0900 Ræs og Næs. Tökum frá 2-3 tíma í vinnu við skálann og svo haldið heim

Verð fyrir námskeið gistingu og kvöldverð á laugardag. kr 4000. á mann.

greiðist inn á reikning 0175-26-444444. kt 600103-3850. staðfesting sendist á ingvar.rikhards@simnet.is

Þeir sem geta komi með sín Gps tæki með sér ásamt köplum. Munum hafa 12 volta spennu á svæðinu.