Afmælis Stórferð á Akureyri

Afmælis Stórferð á Akureyri

9. – 11. mars 2023

Lesið vel því það eru töluverðar breytingar frá fyrri ferðum.

Ferðin núna norður á Akureyri verður tvískipt og því hægt að bæta við á skemmtunina eða fara bara í jeppatúrinn. Nú þarf ekki að kaupa allan pakkann í einu.

  1. Stórferðin sjálf verður eins og venjulega. Ferðin byrjar á föstudeginum með skemmtilegum jeppatúr með leiðsögn Eyfirðinga og verður leiðarval og tímasetningar kynntar síðar en þetta verður stóri ferðadagurinn. Jeppast allan daginn.
    Laugardagurinn verður aðeins öðruvísi þar sem við styttum jeppatúrinn, áætlað er að fara samt í skemmtilegan akstur og koma til baka um 13:00 og safnast þá saman á einhverju stóru bílaplani þar sem verður grillaðar pulsur /pylsur fyrir mannskapinn og þá um leið geta þeir sem viljað farið um og skoðað bílana. Áætlað að þetta sé til 15:00 en þá er þessi ferð búinn. (sjá nánar setja link á dagskránna)
  2. Skemmtunin um kvöldið er að þessu sinni slitin frá ferðinni sjálfri því í ár verður hún stærri og vonandi glæsilegri. Partíið verður í íþróttahúsinu við Síðuskóla á Akureyri (ofan við Glerárkirkju) og mun Bautinn sjá um matinn og alla þjónustu. Matseðillinn verður Lambalæri og Kalkúnabringur með allskonar meðlæti sjá ………. (setja hér link á auglýsinguna)…
    Áfengi verður selt á staðnum og verður verði stillt í hóf. Allar skemmtanir verða í höndum félagsmanna og mun vonandi margt koma á óvart. Áætlað er að skemmtuninni ljúki um miðnætti.
    Verð verður að sjálfsögðu tvískipt þar sem mikill áhugi hefur verið á því að fá að koma á skemmtunina en fólk jafnvel ekki með jeppa til að ferðast á.

Verð í Stórferðina sjálfa verður kr. 2.000,- á mann. Innifalið eru límmiðar farastjórn og pulsur/ pylsur og fl.

Verð á skemmtunina verður kr. 6.000,- á mann þannig að í raun er verðið fyrir einn í ferðina og á ballið samtals kr. 8.000,- Það er lítið mál að bæta við á ballið ef til dæmis maki vill koma á skemmtunina en verður ekki með í bílnum þá er bara að merkja við fjöldann í bílnum og síðan fjöldann á ballið.

Til að skráning verði virk verður að greiða allt gjaldið. Mánuði fyrir ferðina verður ekki hægt að fá endurgreitt.
Athugið leggja á inn á Íslandsbanka reikningupplýsingar eru:
0516-26-024444 kt. 701089-1549

Miðað við skráðar upplýsingar þarf að leggja 0 kr. inn á reikning 0516-26-024444, kennitala 701089-1549