Haustferð Vesturlandsdeildar F4x4 ( FRESTAÐ )

 

Haustferð Vesturlandsdeildar 4×4
Þessi ferð er hugsuð sem kynnisferð hjá Vesturlandsdeild 4×4 og því eru væntalegir meðlimir velkomnir.
Fyrsta ferð vesturlandsdeildarinnar verður farin helgina 26-27september. Farið verður fjallbaksleið syðri í gegnum Hungurfit og gist í Hólaskjól ” sjáwww.eldgja.is”. Það verður síðan ákveðið með tilliti til veðurs hvort að farið verður Fjallbaksleið heim aftur eða hvort að farið verður malbikið með stoppi á áhugaverðum stöðum. Þessi ferð er hugsuð fyrir 33″ breytta bíla og stærri.
4×4 klúbburinn greiðir helming í gistingu ásamt því að boðið verður uppá sameiginlega máltíð á laugardagskvöldinu.
Nánari upplýsingar og skráning er hjá eftirtöldum.
Sigurbjörn Hafsteinsson S: 893-0922
Magni Þorvaldsson S: 899-6559

 

FERÐINNI FRESTAРSælir vegna lélegs veður útlits og lítillar þátttöku höfum við ákveðið að fresta haustferðinni.  Við látum vita þegar okkur dettur einhver sniðug ferð í hug 😉