Landgræðsluferð í Þjórsárdal 10-12 júní 2016

Góðan daginn,
nú er loks komið að okkar árlegu ferð í Þjórsárdalinn eða helgina 10 – 12 júní. Í samvinnu við Hekluskóga fékk Ferðaklúbburinn 4×4 úthlutað svæði vorið 2008 í Þjórsárdal við Þórðarhöfða og Núpsskóg til að vernda, hefta fok, rækta og endurheimta birkiskóg. Undir leiðsögn Hreins Óskarssonar hjá Hekluskógum hefur þar verið sáð grasfræi, áburður borinn á og gróðursettar þúsundir trjáplantna árlega síðan sem hefur orðið til þess að dalurinn<span class=”text_exposed_show” style=”display: inline;”> hefur tekið gífurlegum breytingum.
Helgin 10 – 12 júní var valin til að fara Landgræðsluferðina. Haldið verður áfram þar sem frá var horfið á síðasta ári og farið sunnar á holtið. Vonandi mun fríður hópur manna taka vasklega til hendinni í príðilegu veðri á laugardeginum og ekki líta upp frá störfum fyrr en allur áburður er dreifður og allar trjáplöntur eru gróðursettar. Í framhaldinu verður svo grillað á tjaldstæðinu í Þjórsárdal og átt góða stund fram eftir kvöldi. Þess má geta að frítt er fyrir hópinn á tjaldstæðinu alla helgina.
Svæðið við Núpsskóg og Þórðarhöfða getur í framtíðinni ef vel tekst til orðið að yndislegri vin með góðri aðstöðu fyrir félagsmenn til útiveru og samveru. Það veltur fyrst og fremst á okkur sjálfum að láta það verða að veruleika.
Sjá má umfjöllun og myndir af störfum okkar hér…. http://www.jakinn.is/?album=landgraedsluferd-2013

Gott væri ef félagsmenn tilkyntu hér í þennan þráð með þátttöku svo auðveldar verður að haga innkaupum á mat…………..