Litlanefnd í Landmannalaugar

Nú hefur Litlanefndin legið yfir öllum mögulegum upplýsingum um færð, snjóalög og veðurspá og í framhaldi af því tekið þá ákvörðun að fresta fyrirhugaðri ferð fram á laugardaginn 11. apríl næstkomandi.

Eins og við höfum nefnt í póstum hér að undanförnu hefur verið afar þung færð á fjallvegum landsins vegna púðursnjós og ómögulegt fyrir lítið breytta bíla að komast eitthvað áfram.

Á morgun laugardag er gert ráð fyrir þýðu og rigningarveðri allan daginn og vindhraða 8 til 12 m/s.

Þessi þýða og rigning á að standa yfir fram á þriðjudag í næstu viku. Það eru því góðar líkur á að allur þessi púðursnjór nái að rigna eitthvað niður og þjappast. Á þriðjudaginn er svo gert ráð fyrir frosti aftur sem verður til þess að skel myndist á snjónum.

Við erum því bjartsýnir á að við getum haldið okkur við upphaflega planið og stefnum á að fara inn í Landmannalaugar.

Við viljum biðja þá sem eru skráðir, en komast ekki þann 11. að senda okkur póst, þannig að við getum þá hleypt þeim að sem eru á biðlista fyrir ferðina.

Bestu kveðjur í bili og takk fyrir þolinmæðina.

Litlanefndin


 

Skráning er nú hafin í ferð Litlunefndar í Landmannalaugar. Ferðin verður farin fimmtudaginn 2. apríl á Skírdag og verður laugardagur 4. apríl til vara ef veður leyfir ekki á fimmtudegi.

Farið verður í Hrauneyjar á malbiki um Árnes. Stoppað í Hrauneyjum og hleypt úr. Farið hefðbundin leið upp í Landmannalaugar þar sem stoppað er og tekið kaffi.

Á heimleiðinni er stefnan sett á Dyngjuleið ef færð leyfir.

Skráningarformið má finna á þessum link.

https://drive.google.com/open?id=1l4LV4F4TCV3fHYnV8S1ZnmyQ5R3gGKrLITKqhVCsmME&authuser=0

Kveðja,
Litlanefnd