Á árinu 2012 varð Litlanefnd 10 ára og af því tilefni var farið í afmælisferð í Landmannalaugar, en fyrsta ferð Litlunefndar var í Laugar árið 2002. Um 60 bílar lögðu í hann og komust allir á leiðarenda nema 2 sem þurftu frá að hverfa vegna bilana, annar á malbiki en hinn rétt ofan malbiks. Veðrið lék við ferðalanga og allir nutu dagsins hið besta. Fleiri myndir [url=https://picasaweb.google.com/104055187701757447797/LitlaLandmannlaugarApril2012AfmLisfer#]hér[/url]