Hvítri, tveggja sleða vélsleðakerru, frá Hjálparsveit Skáta Kópavogi, var stolið í gær eða um helgina þar sem hún stóð fyrir utan húsnæði sveitarinnar við Kópavogshöfn. Um er að ræða hvíta tveggja sleða sleðakerru frá Vögnum og þjónustu og er númerið LY-300. Grindin er galvaníseruð með sérstyrktu beisli og er kerran með sturtu og yfirbyggingin úr hvítu trefjaplast. Stór logo HSSK er u aftaná kerrunni, en engar merkingar eru á hliðinni þar sem hún var að fara í merkingu. Ef einhver hefur upplýsingar um kerruna þá vinsamlega hafið samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu eða beint við Hjálparsveitina; við Reyni í 899-3132. Öll hjálp vel þegin.