Fórum nokkur í dagstúr á tveim bílum, að prófa nýja Jeppann hans Lúffa. Leiðin lá upp Hamragarðaheiðina og yfir á Fimmvörðuháls. Kíktum ofan í Þórsmörkna sem var meiriháttar, en héldum síðan áfram á Mýrdalsjökul og fórum niður hjá Sóleimajökli. Færi var gott, ló-gírinn var þó aðeins notaður. Veður var með besta móti logn og blíða með skýjabólstrum á víð og dreif.