Fórum á 5 bílum í Jökulheima á föstudagskvöldinu og gistum þar. Svo var keyrt á fjallið á laugardeginum þar sem einn Barbí affelgaði 7 sinnum og endaði í spotta í Patrol. Gufan var tekin hátíðlega og hangilærinu sporðrennt. Heim sömu leið á sunnudeginum og aðeins ein affelgun á Barbí en samt í spotta langleiðina heim :)