Lagt var af stað að morgni 1 maís 2003 og lá leið austur að Breiðamerkurjökli. Þegar komð var að Eyjafjallajökli fór að snjóa og þegar komið var í skarðið milli Reynisfjalls og Víkuheiði var snjókoma svo mikil að ekki sást í olíubrúsana fram á stuðara. Okkur leyst ekkert á þetta en samt var haldið áfram og þegar við komum inn í Skaftafell sáum við bláma yfir Vatnajökli og lyftist þá bruninn á mannskapnum.